Fjölmennur Útidúr vekur athygli 25. október 2010 06:00 Hljómveitin Útidúr spilaði í Tjarnarbíói á Airwaves-tónlistarhátíðinni. fréttablaðið/arnþór „
Við fórum í viðtöl hjá Frakka og einhverjum Ameríkana sem eru bloggarar," segir Kristinn Roach Gunnarsson, píanóleikari Útidúrs. Þessi efnilega poppsveit spilaði í Tjarnarbíói á Airwaves-hátíðinni fyrir skömmu og vakti þar athygli erlendra blaðamanna. „Þetta var mjög gaman. Þetta er mjög flottur staður og við fengum fín viðbrögð." Meðlimir Útidúrs eru tólf og eru á aldrinum 16 til 24 ára, allir af höfuðborgarsvæðinu. Sveitin hefur verið starfandi í eitt ár og var að gefa út sína fyrstu plötu, sem nefnist The Mess We've Made. „Ég og Gunnar [Örn Egilsson] söngvari vorum í Kvennó saman og vorum í mörgum hljómsveitum þar. Þar kynntumst við Rakel [Mjöll Leifsdóttur] og svo bættist smám saman í hópinn," segir Kristinn. Hljómsveitin gefur plötuna út sjálf en Record Records sér um dreifingu. Mikil vinna var lögð í plötuna og ber fagmannlega unnið umslagið vott um það. „Við þurfum að selja ansi mikið til að komast upp í núllið en vonandi gengur það vel." Hönnuður umslagsins var söngvarinn Gunnar Örn, sem stundar nám í arkitektúr í Listaháskóla Íslands. „Þetta er eitt af áhugamálum hans," segir Kristinn. Útidúr ætlar að fylgja plötunni eftir með útgáfutónleikum í Iðnó 17. nóvember. Sveitin stefnir á að fara til útlanda næsta sumar en ekkert er öruggt í þeim efnum. „Það er dýrt vesen að flytja svona stóra hljómsveit út." - fb
Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Fleiri fréttir Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Sjá meira