Lífið

Variety dæmir Draumalandið

andri snær magnason Draumalandið fær góða dóma hjá bandarísku kvikmyndabiblíunni Variety.fréttablaðið/stefán
andri snær magnason Draumalandið fær góða dóma hjá bandarísku kvikmyndabiblíunni Variety.fréttablaðið/stefán

Heimildarmyndin Draumalandið fær góða dóma hjá bandarísku kvikmyndabiblíunni Variety. Það telst til tíðinda þegar íslenskar kvikmyndir eru gagnrýndar hjá Variety og því eru þetta ánægjuleg tíðindi fyrir framleiðendur myndarinnar.

Í dómnum segir að í Draumalandinu komi fram tilfinningaþrungin, sjónræn og mælskuleg rök sem setji umhverfis- og efnahagsleg vandamál Íslands í sögulegt samhengi, sérstaklega eftir að bankahrunið varð árið 2008.

Gagnrýnandi netmiðilsins Art Threat í Kanada er einnig ánægður með myndina og segir Draumalandið eiga sér enga sína líka og sé ein besta umhverfismynd allra tíma.

„Það er ein ástæða umfram allar aðrar fyrir því að ekki er hægt að taka mark á Óskarsverðlaununum í ár. Heimildarmyndin Draumalandið er ekki tilnefnd sem besta myndin, besta heimildarmyndin, eða til nokkurra annarra verðlauna," sagði gagnrýnandinn.

Myndin hefur verið á töluverðu flakki á kvikmyndahátíðum og hvarvetna fengið góðar viðtökur. Hún hlaut mikla athygli á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í Gautaborg og var uppselt á allar sýningar, Andri Snær Magnason, sem leikstýrði myndinni ásamt Þorfinni Guðnasyni, svaraði spurningum og tók þátt í pallborðsumræðum með fyrrverandi erkibiskup í Svíþjóð. Aðstandendur myndarinnar voru einnig viðstaddir sýningar í Helsinki og Tallinn og komust færri að en vildu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.