Lífið

Garðar Cortes á smáskífu með Paul Potts

Styrkja Haítí Garðar Thor og Paul Potts eru meðal þeirra sem syngja á nýrri smáskífu sem gefa á út til styrktar Haítí. 
Fréttablaðið/Stefán
Styrkja Haítí Garðar Thor og Paul Potts eru meðal þeirra sem syngja á nýrri smáskífu sem gefa á út til styrktar Haítí. Fréttablaðið/Stefán

„Það var bara haft samband við mig og ég beðinn um að vera með. Þetta kom skemmtilega á óvart og það er auðvitað alltaf gaman að geta hjálpað,“ segir Garðar Thor Cortes óperusöngvari. Hann syngur á nýrri smáskífu ásamt fremstu fulltrúum sígildrar tónlistar á Bretlandseyjum sem gefa á út til styrktar fórnarlömbum hamfaranna á Haíti. Alls tóku 23 söngvarar þátt en meðal þeirra sem syngja með Garðari er Paul Potts sem sló eftirminnilega í gegn í sjónvarpsþáttunum Britain"s Got Talent.

Garðar hafði því miður ekki tíma til að taka þátt í aðalupptökunum sem fóru fram á laugardaginn þannig að hann mætti í hljóðverið ásamt Konunglegu fílharmóníusveitinni og tók upp sitt framlag. Lagið sem á að gefa út heitir The Prayer og varð geysivinsælt í flutningi Celine Dion og Andrea Bocelli. Í frétt á BBC segir að hver söngvar syngi eina laglínu þar til allir sameinast í ákaflega hljómmiklum kór.

Garðar hefur annars verið á flakki að undanförnu. Í London átti hann stefnumót við nokkra aðila í tengslum við framtíðarverkefni og hann var nýkominn heim frá Noregi þegar Fréttablaðið hafði samband við hann.

„Og svo er ég að fara til Wales að syngja í einhverjum sjónvarpsþætti, þannig að það eru alltaf einhver verkefni í gangi,“ segir Garðar, hógvær að venju. Áætlað er að smáskífan The Prayer komi út þann 14. mars. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.