The XX og FM Belfast efst 8. júlí 2010 05:00 Hljómsveitirnar FM Belfast og Seabear hafa verið duglegar við spilamennsku í Evrópu að undanförnu.
Enska hljómsveitin The XX og FM Belfast eru efstar á lista yfir flestar tónleikabókanir hljómsveita á árinu í kjölfar Eurosonic-hátíðarinnar í Hollandi. The XX hefur verið boðið á ellefu hátíðir í Evrópu og fast á hæla hennar fylgir FM Belfast með níu hátíðir. Í breska vikuritinu Music Week, sem er mest lesna viðskiptablað tónlistargeirans í Evrópu, eru taldar saman flestar bókanir sem hljómsveitir hafa náð í Evrópu á árinu fyrir tilstuðlan ETEP-áætlunarinnar sem tónlistarhátíðin Eurosonic stendur fyrir. Music Week segir árangur breskra sveita aldrei hafa verið betri en á þessu ári. Íslendingar ná næstbestum árangri og skipta FM Belfast og Seabear með sér tólf bókunum á tónlistarhátíðir í Evrópu. Belgar koma þar á eftir með Isbells og Admiral Freebee sem skipta á milli sín sjö bókunum. ETEP-áætlunin hefur verið starfrækt af Eurosonic í átta ár fyrir flytjendur sem eru að byrja að vekja athygli. Þannig segir breski tónleikabókarinn David Exley að ETEP hafi virkilega hjálpað til við að koma The XX á kortið. Með greininni í Music Week birtist síðan mynd af The XX og FM Belfast. Yfir fimmtíu tónlistarhátíðir í Evrópu taka þátt í Eurosonic til að kanna nýliðunina í evrópskri poppsenu og um leið fá þær stuðning við að bóka minna þekktar hljómsveitir. Þar á meðal eru Glastonbury, Sziget, Benicasim, Hultsfred og Hróarskelda, þar sem FM Belfast spilaði á dögunum.
Mest lesið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Tónlist „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Emmsjé edrú í sjö ár Lífið Fleiri fréttir Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Sjá meira