Spaugstofan ræðst á skýrsluna - lokaþáttur á laugardag 14. apríl 2010 07:00 Á laugardaginn fer 381. þáttur Spaugstofunnar í loftið. Ekki liggur fyrir hvort það verði svanasöngur fjórmenninganna.
Síðasti þáttur Spaugstofunnar í bili verður á laugardaginn. Það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart að sá þáttur verði að mestu leyti helgaður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var á blaðamannafundi á mánudagsmorgun í Iðnó. Pálmi Gestsson, einn af forkólfum Spaugstofunnar, segir þá félaga hafa aðeins verið að rýna í skýrsluna á Netinu og fréttir af henni. „Við erum svona að velta því fyrir okkur hvernig við tökum á þessu. Við erum ekki komnir með neinar skýrar línur fyrir þáttinn á laugardaginn, hann er í vinnslu," útskýrir Pálmi og bætir við að þeir þurfi kannski ekkert að skrifa neitt handrit, sum ummælanna í skýrslunni geti bara vel staðið á eigin fótum í Spaugstofunni. Pálmi segir skýrsluna hafa komið sér á óvart. „Hún er svo afdráttarlaus og skýr og staðfesti í raun þá hluti sem alla grunaði en höfðu ekki hugmynd um að væri fótur fyrir," segir Pálmi. „Sárast í þessu öllu er kannski að ég hélt að ég byggi í vestrænu og óspilltu landi en vakna upp, á miðjum aldri, í drullupolli." Þegar talið berst hins vegar að framtíð Spaugstofunnar sjálfrar segir Pálmi að þeir viti ekki betur en að þessi þáttur verði þeirra síðasti. Páll Magnússon útvarpsstjóri tekur ekki undir þau orð. Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framhaldið, hún ætti þó að liggja fyrir í maí. Stöðugar sögusagnir hafa verið á kreiki um að Spaugstofan hætti eftir þetta ár en hún hefur verið í loftinu síðasta 21 ár. „Við setjum niður haustdagskrána í maí og þá kemur þetta allt í ljós," segir Páll.- fgg
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira