Lýtalæknir heldur tónleika 24. mars 2010 04:15 Þórdís segir að tónlistin og lýtalækningarnar eigi mjög vel saman. fréttablaðið/valli
Þórdís Kjartansdóttir, sem er eini kvenkyns lýtalæknirinn á Íslandi, heldur sína fyrstu tónleika hér á landi á Café Rosenberg á föstudagskvöld. Þar ætlar hún að syngja létta og ástríðufulla djasstónlist með frönsku ívafi. „Það er mikið framboð af góðu tónlistarfólki á Íslandi en þegar maður er með tónlistina í blóðinu verður maður að fá útrás fyrir sönginn,“ segir Þórdís. „Þetta er ekkert annað en ástríða.“ Þórdís lærði á píanó þegar hún var ung að árum og fékk þá að eigin sögn strangt klassískt tónlistaruppeldi. Þegar hún flutti til Frakklands til að læra að verða lýtalæknir fór hún að syngja fyrir hálfgerða tilviljun og á endanum var hún farin að syngja reglulega á fimmtudagskvöldum á djassklúbbi í Strasbourg. „Þetta voru langir dagar. Ég kláraði að vinna klukkan 20, fór síðan í sturtu og svissaði alveg um gír. Það var dálítið „kikk“ að þora að gera eitthvað annað og kúpla sig frá öllu til að syngja,“ segir Þórdís. Hún flutti til Íslands í lok ársins 2006 eftir að hafa búið í Frakklandi í tíu ár og starfar bæði á Landspítalanum og í Glæsibæ. Hún segir það fara vel saman að stunda lýtalækningar og syngja djass. „Ef maður getur sinnt ástríðunni þá líður manni betur í lífinu. Ef það verður framhald á þessu held ég að þetta geri mig að betri lækni því ég verð ánægðari með lífið og tilveruna.“ Með Þórdísi á tónleikunum, sem hefjast klukkan 21.30, spila Tómas R. Einarsson, Gunnar Gunnarsson, Vilhjálmur Guðjónsson og Scott McLemore. - fb
Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira