Hugsa út fyrir Ísland 21. janúar 2010 01:00 Frá höfuðstöðvum Redd lights á laugavegi Ingi Már Úlfarsson og Jóhann Bjarkason eru með puttana á púlsinum. Fréttablaðið/Anton
Lagið Hlið við hlið með Friðriki Dór var þriðja mest spilaða íslenska lagið á FM 95,7 í fyrra og er enn á lista. Friðrik er ungur og upprennandi poppsöngvari frá Hafnarfirði en mennirnir á bak við lagið heita Ingi Már Úlfarsson og Jóhann Bjarkason. Ingi Már og Jóhann mynda saman Redd lights hljóðvinnsluteymið sem vakið hefur mikla athygli. „Við gerum poppað R&B með undirliggjandi hipp hopp-áhrifum,“ segir Ingi Már. „Þessi hljómur hefur ekki verið til á Íslandi en ef það heyrist hljómar það alltaf eins og sá sem gerði það kunni það ekki. Við viljum hljóma eins og „milljón bökks“. Það er í grófum dráttum stefnan. Við erum með græjurnar til þess þótt alltaf megi bæta við.“ Strákarnir eru fæddir 1987 og kynntust fyrst hjá rampinum á Sauðárkróki. „Ég var í sjötta bekk að heimsækja frænda minn og Jói átti heima á Króknum,“ segir Ingi. „Við náðum saman af því við vorum báðir inni í Wu Tang. Svo flutti hann í bæinn og samstarfið hófst. Þetta var bara fikt til að byrja með. Við vorum að gera hipp hopp-tónlist hvor í sínu horninu, en eftir að við fórum að vinna saman þá tókum við bara toppana á poppinu til fyrirmyndar – til dæmis pródúsera eins og Danja, Timbaland, Tricky Stewart, StarGate og T-Pain. En áhrifin koma víðar. Alveg frá Giorgio Moroder og Yellow Magic Orchestra og upp úr. Og Michael Jackson að sjálfsögðu.“ Tvö lög eru komin út með Friðriki Dór en strákarnir ætla að klára plötu með honum í ár. Þeir vinna líka lög með Blazroca á væntanlegri sólóplötu hans, hafa gert remix með Mammút og Sometime remix er á leiðinni. Þeir stefna lengra en Ísland. „Við erum að reyna að gera stærri hluti en rúmast á Íslandi – eins ansalega og það hljómar alltaf að segja það – og erum að leggja grunn að einhverju sem gæti orðið eitthvað, annaðhvort eftir einn mánuð eða fjögur ár. Við þurfum bara að vera duglegir og vinna alltaf þegar við getum. Það liggur við að við séum búnir að „beila“ á öllu félagslífi því við tökum alltaf tónlistina fram yfir.“ - drg
Mest lesið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi Lífið Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Lífið Zendaya sást í miðbænum Lífið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Bíó og sjónvarp Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Lífið Sumarleg og saðsöm salöt Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Lífið Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Sjá meira