Erlent

Afganar enn beðnir að sýna þolinmæði

Á fundi með Bandaríkjamönnum í Kabúl Haji Katel, einn afgönsku öldunganna, kveður sér hljóðs og hafði ýmislegt að segja við bandarísku herforingjana.
fréttablaðið/AP
Á fundi með Bandaríkjamönnum í Kabúl Haji Katel, einn afgönsku öldunganna, kveður sér hljóðs og hafði ýmislegt að segja við bandarísku herforingjana. fréttablaðið/AP

Afganistan, AP Ættarhöfðingjar Pastúna í Afganistan nörtuðu í súkkulaðitertu og ávexti sem bornir höfðu verið á borð meðan þeir hlustuðu kurteislega á ræður bandarískra herforingja um nýtt fyrirkomulag. Það gerir öldungum afganskra þorpa kleift að fá fanga leysta úr haldi Bandaríkjamanna ef þeir í staðinn lofa að bera ábyrgð á þeim.

Síðan stóð einn öldunganna upp og hóf að spyrja spurninga. Hvers vegna var fjórum mönnum, sem nú voru látnir lausir, haldið mánuðum saman í Bagram-fangelsinu án þess að til væru nokkur sönnunargögn gegn þeim? Og hvers vegna halda Bandaríkjamenn áfram að ráðast inn á heimili fólks að næturlagi án þess að ráðgast við öldunga þorpsins, eins og lofað hafði verið?

Fangelsið við Bagram-flugvöll, skammt norður af höfuðborginni Kabúl, er hið stærsta sem Bandaríkjamenn reka í Afganistan. Þar hafa um 600 manns verið í haldi vegna gruns um stuðning við talibana. Síðan í janúar hafa ættarhöfðingjar átt kost á því að fá menn úr þessum hópi látna lausa, með því að gangast í ábyrgð fyrir þá og lofa að fylgjast með því hvort þeir sýni einhver merki um að taka þátt í uppreisn talibana.

Síðan bandaríski herforinginn Stanley McCrystal tók við sem yfirmaður herafla NATO í Afganistan á síðasta ári, hefur hann lagt áherslu á samstarf við heimamenn til að gera þá fráhverfa stuðningi við uppreisnarhópa. Þau samskipti snúast oftar en ekki upp í vettvang fyrir óánægju heimamanna, sem safnast hefur upp árum saman.

Bagram-fangelsið hefur verið sérlega viðkvæmt deilumál. Heimamenn hafa ekki síst gagnrýnt Bandaríkjamenn fyrir að handtaka fólk á heimili þess að næturlagi án þess að gefa neinar skýringar.

„Afganar heyra margt,“ sagði Walir Wakil, einn öldunganna á fundinum í Kabúl. Hvar, spurði hann, má sjá merki þess að stefna Baracks Obama Bandaríkjaforseta um nánara samstarf erlendra hermanna við leiðtoga heimamanna hafi verið tekin upp?

Patrick McCarthy, bandarískur sjóliðsforingi, reyndi ekki að réttlæta framferði landa sinna á fundinum. Hann gerði ekki annað en að biðja menn að sýna þolinmæði, eins og þeir hafa verið beðnir um að gera í átta ár.

„Við erum að breyta starfsháttum okkar þannig að Bandaríkjamenn og Afganar geti starfað saman hlið við hlið,“ sagði hann. „Það tekur svolítinn tíma að koma þessu öllu í réttan farveg.“

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×