Dauðarokkarar kveðja í bili 14. ágúst 2010 10:00 Íslenska dauðarokkssveitin spilar á kveðjutónleikum á Sódómu á laugardagskvöld. „
Við erum mjög spenntir. Það verður gaman að fá að kveðja landann með dúndurtónleikum,“ segir söngvarinn Ingólfur Ólafsson. Dauðarokkssveitin Severed Crotch heldur kveðjutónleika á Sódómu á laugardagskvöld. Ástæðan er sú að trommarinn, Gunnar Þór Einarsson, er að flytja til Kanada í hljóðvinnslunám í að minnsta kosti eitt ár. Á meðan tekur sveitin sér hlé frá tónleikahaldi. Severed Crotch hefur starfað frá árinu 2004 og hefur með árunum sannað sig sem ein fremsta öfgarokksveit landsins. Í sumar gaf sveitin út sína fyrstu stóru plötu, The Nature of Entropy, og verða lög af henni spiluð á tónleikunum. Ingólfur viðurkennir að það sé dálítið skrítið að sveitin haldi kveðjutónleika rétt eftir að hafa gefið út sína fyrstu plötu. „En á sama tíma fáum við tíma til að einbeita okkur að því að semja nýtt efni fyrir næstu útgáfu. Við gerum það besta úr þessu.“ Severed Crotch hefur spilað einu sinni erlendis, í Hollandi árið 2008. Sveitin hyggur á frekari landvinninga, enda erfitt að spila sífellt fyrir sama fólkið hér á landi. „Við ætlum að reyna að skipuleggja tónleika erlendis fyrir næsta sumar og hugsanlega eitthvað í Norður-Ameríku,“ segir Ingólfur. Hljómsveitirnar Manslaughter, Angist og Gone Postal spila einnig á tónleikunum á Sódómu, sem hefjast klukkan 23. Ókeypis er inn og aldurstakmark er 18 ár. - fb
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Fleiri fréttir „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Sjá meira