Fótbolti

Jafnt hjá Ítölum og Nýja-Sjálandi

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Ítalar leita enn af fyrsta sigrinum á HM.
Ítalar leita enn af fyrsta sigrinum á HM.
Ítalía og Nýja-Sjáland gerðu 1-1 jafntefli er liðin áttust við í dag í F-riðli á HM. Fyrsta mark leiksins skoruðu Ný-Sjálendingar en þar var að verki Shane Smeltz sem skoraði eftir aðeins sjö mínútna leik.

Ítalar fengu vítaspyrnu eftir hálftíma leik og jöfnuðu metin en Vincenzo Iaquinta fór á punktinn og skoraði af öryggi. Fleiri urðu mörkin ekki og sættust liðin á jafntefli.

Paragvæ situr efst á toppi riðilsins með fjögur stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×