FM Belfast hannar boli, stuttbuxur og svitabönd 27. mars 2010 09:00 Hljómsveitin FM Belfast hyggst senda frá sér stuttbuxur, boli og svitabönd fyrir sumarið. Varningurinn mun koma sér vel á tónleikum hljómsveitarinnar, en á þeim er oft heitt í kolunum. Halldór í Henson hlakkar til samstarfsins. Treyjan sem hann heldur á er ekki úr línu FM Belfast. „
Við viljum fá íþróttaandann inn - að fólk upplifi sig sem íþróttastjörnur á tónleikum með okkur," segir Árni Vilhjálmsson úr hljómsveitinni FM Belfast. FM Belfast ætlar að senda frá sér boli, stuttbuxur og svitabönd í samstarfi við Henson í sumar. Klæðnaðurinn mun henta sérstaklega vel fyrir gesti á tónleikum hljómsveitarinnar, en þar myndast iðulega gríðarlega sveitt stemning - svo sveitt að fólk hefur vanið sig á að fækka fötum á miðjum tónleikum. „Fólk hikar ekki við að fara úr buxunum á tónleikum og jafnvel hoppa upp á svið í leiðinni," segir Árni. Það er því við hæfi að sérstakar FM Belfast-stuttbuxur verði í boði á næstunni.„Fólk þarf þá ekki að vera algjörlega berskjaldað á nærfötunum þegar það fer úr buxunum á tónleikum. Þá getur það verið í FM Belfast-stuttbuxum." Stuttbuxurnar leysa einnig ákveðið innanbúðarvandamál, en Árni segir það hafa komið reglulega fyrir að hann sé eini meðlimurinn sem kemur fram á nærbuxunum á meðan hinir klæðast stuttbuxum. „Ég er alltaf illa svikinn, hlaupandi um einn á nærbuxunum á meðan þeir sleppa auðveldlega," segir hann. „Núna er komið að því að allir verði í stuttbuxum." FM Belfast hyggst einnig láta framleiða á sig íþróttagalla, sem koma sér vel í löngum tónleikaferðum erlendis sem eru fram undan í vor og sumar. „Þegar maður ferðast í rútum langar leiðir er óþægilegt að vera í þröngum gallabuxum," útskýrir Árni. „Það væri miklu betra að vera í þægilegum íþróttagöllum. Enn þá betra ef allir væru í eins göllum - upp á andann." Hann bætir við að íþróttagallinn verði aðeins fyrir meðlimi hljómsveitarinnar „nema það þróist brjáluð eftirspurn eftir FM Belfast-íþróttagöllum". Halldór Einarsson í Henson segir að hljómsveitir leiti alltaf annað slagið til fyrirtækisins. „Við ætlum að gera eitthvað sniðugt saman. Þetta er eins og við gerðum með Quarashi fyrir nokkrum árum. Það var mjög skemmtilegt," segir hann. „Við gerðum líka búninga fyrir Stuðmenn. Þetta dúkkar upp. " En eitt að lokum, hefurðu hlustað á FM Belfast? „Nei. Góður," segir Halldór og hlær. „Ég er enn þá bara í Tom Jones og Ragga Bjarna!" atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira