Sýndarveruleiki næturlífsins í nýju lagi 23. júní 2010 08:30 Poetrix hefur gefið út nýtt lag sem ber nafnið Gredda.mynd/Marino
Rapparinn Poetrix hefur gefið út nýtt lag sem ber nafnið Gredda. Lagið mun fara í spilun á útvarpsstöðvum landsins á næstu dögum. Rúm tvö ár eru síðan rapparinn gaf út lagið Vegurinn til glötunar í samvinnu við Bubba Morthens. „Poetrix er búinn að liggja í dvala og bíða eftir innblæstri. Finna það sem rímaði best við sig. Það fann hann í kjallara á hóruhúsi í hausnum á sér,“ segir rapparinn. Spurður um hvað lagið fjallar svarar hann að það sé tilraun hans til að lýsa sýndarveruleikanum sem verður til í miðbæ Reykjavíkur „Það verður til annar veruleiki niðri í bæ um helgar. Venjulegt fólk breytist í vampírur þar sem dögunin er þeirra versti óvinur. Því lífið er ljót tík þegar þú vaknar daginn eftir og sérð hana í birtunni.“ Ný plata er í bígerð hjá Poetrix og hefur hann fengið elítu tónlistarbransans með sér í lið. Þeir Ómar Guðjónsson gítarleikari, Jakob Smári Magnússon bassaleikari, Einar Scheving trommuleikari og Bergþór Smári gítarleikari slá taktinn á nýju plötunni. „Platan hljómar eins og fönkí maníu depressíf-sjúklingur sem ætlar að bjarga heiminum en er of veikur fyrir konunum sem hann hittir á leiðinni. Hljómsveitin er fær um að búa til takt sem fær fólk til að kinka kolli taktfast í svefni og þangað til í næsta lífi,“ segir Poetrix að lokum. - áp
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira