Hann var snöggur að öllu 3. apríl 2010 05:00 Jónatan Garðarsson skrifar ævisögu Karls Sighvatssonar, sem á að koma út í haust. „
Ég er farinn að viða að mér efni og draga saman staðreyndir sem gott er að hafa á hreinu áður en maður byrjar að taka viðtöl,“ segir Jónatan Garðarsson, sem skrifar ævisögu tónlistarmannsins Karls Sighvatssonar. Karl spilaði meðal annars með Trúbroti og Þursaflokknum, en lést sviplega í bílslysi á Hellisheiði fjörutíu ára gamall árið 1991. „Það hefur eiginlega ekkert verið skrifað um Karl,“ segir Jónatan. „Hann var mjög ungur þegar hann byrjaði í tónlistinni. Var ekki nema 10 ára þegar hann stofnaði fyrstu hljómsveitina upp á Skaga. Svo var hann í hljómsveit í Reykholti en fljótlega eftir að hann kom til Reykjavíkur var hann byrjaður í böndum. Fyrst smá tíma í Tónum, þá í Dátum og svo stofnaði hann Flowers. Svo er sú saga þekkt hvernig hann fór yfir í Trúbrot og svo úr og í bandið. Skólagangan hjá honum var gloppótt. Hann fór í nám til Austurríkis og var þar í tæp tvö ár og svo löngu seinna í skóla í Berkeley í Kaliforníu. Hann var svo starfandi sem organisti fyrir austan fjall þegar hann lést.“ Þeir Jónatan og Karl þekktust ágætlega. „Við áttum samskipti á ýmsum sviðum í gegnum tíðina. Þegar ég stofnaði Jazzvakningu með öðrum kom hann oft á djasskvöld og djammaði. Eftir að ég fór í plötuútgáfubransann tengdist ég honum og eins þegar ég starfaði sem blaðamaður. Ég myndi lýsa honum þannig að hann var snöggur að öllu. Hann var kvikur og ör og vinmargur, fór víða um og stoppaði yfirleitt stutt. Á föstudeginum áður en hann dó kom hann til mín á skrifstofuna. Ég var á fundi svo hann sagðist ætla að koma aftur á mánudaginn og ræða málin. Hann ætlaði að koma með einhverja hugmynd. Svo frétti ég bara af því á sunnudagskvöldinu að hann væri dáinn.“ Bókin um Karl Sighvatsson er fyrsta „rokkbókin“ sem heyrist af í ár. Í fyrra var mikil sprenging í þessari tegund bókmennta þegar ævisögur um menn eins og Magnús Eiríksson og Vilhjálm Vilhjálmsson komu á markaðinn, auk bókarinnar 100 bestu plötur Íslandssögunnar, sem Jónatan skrifaði með Arnari Eggerti Thoroddsen. Það var fyrsta bókin sem Jónatan skrifaði, en hann hefur skrifað mikið um tónlist á plötukápur og í dagblöð. Æskan gefur bókina um Karl út í haust. drgunni@frettablaðið.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira