Lífið

Mynd um ævi Játvarðs

madonna Söngkonan Madonna ætlar að leikstýra sinni annarri kvikmynd.
madonna Söngkonan Madonna ætlar að leikstýra sinni annarri kvikmynd.
Söngkonan Madonna ætlar að leikstýra og skrifa handritið að dramatískri mynd sem verður byggð á ævi Játvarðs VIII., konungs yfir Bretlandi. Þetta verður önnur myndin sem Madonna leikstýrir. Fyrir tveimur árum sendi hún frá sér Filth and Wisdom, sem fékk herfilega dóma hjá gagnrýnendum og litla aðsókn.

Söguþráðurinn er áhugaverður því söguhetjan Játvarður afsalaði sér krúnunni árið 1936 til að geta kvænst bandarísku konunni Wallis Simpson. Vera Farmiga úr Up in the Air hefur verið orðuð við hlutverk Simpson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.