Ríflega þrjú þúsund skátar efna til þings 21. júlí 2009 04:30 glæsileg setningarathöfn Mikið var um dýrðir þegar Roverway-skátamótið var sett við hátíðlega athöfn á túninu við Háskóla Íslands. Fjölmiðlafulltrúi mótsins segir setninguna hafa tekist alveg ofboðslega vel. fréttablaðið/gva
Rúmlega 3.100 skátar frá 44 löndum eru nú samankomnir á Íslandi til þess að taka þátt í Roverway-skátamótinu. Skátarnir eru á aldrinum 16 til 22 ára, en auk þeirra er mikill fjöldi starfsmanna og sveitaforingja. Stærstu hóparnir koma frá Spáni, Portúgal, Ítalíu og Frakklandi, og litlir skátahópar komu til dæmis frá Hong Kong, Mexíkó og Ástralíu. Mótið var sett við hátíðlega athöfn fyrir framan Háskóla Íslands í gærmorgun. „Við vorum ofboðslega heppin með veður og setningarathöfnin heppnaðist alveg ofboðslega vel," segir Benjamín Axel Árnason, fjölmiðlafulltrúi mótsins. Að setningunni lokinni héldu skátarnir strax í fjögurra daga ferðir víðs vegar um landið. Búið var að skipta þeim í 52 fjölþjóðlegar sveitir, sem hver og ein er skipuð 50 skátum og tveimur íslenskum skátaforingjum. Að sögn Benjamíns eru leiðangrarnir mjög fjölbreyttir, eins og skátastarfið. „Þetta er allt frá fjallaferðum og klifri, í menningu, listir, tækni og vísindi." Meðal þess sem í boði er eru leiðangur á Hvannadalshnjúk og ganga um Hornstrandir, menningarferð um Reykjavík, hesta- og menningarleiðangur um æskuslóðir Halldórs Laxness og leiðangur um höfuðstöðvar Latabæjar. Þá eru svokallaðir samfélagshópar á Sólheimum í Grímsnesi og í Stykkishólmi, svo fátt eitt sé nefnt. „Hóparnir taka svo saman á föstudag og halda á Úlfljótsvatn," segir Benjamín. Þar verður „Alþingi á Úlfljótsvatni" haldið í dag. „Við skiptum niður í dagskrárþorp á föstudag og laugardag og á sunnudag verðum við með karnivaldag. Það er algjört ævintýri, því þá er hvert einasta land með kynningar á sínu landi og menningu." Roverway-mótið er nú haldið í þriðja sinn, en það var haldið í Portúgal árið 2003 og á Ítalíu 2006. Undirbúningur mótsins hefur staðið í rúm tvö ár að sögn Benjamíns. Hann segir jafnframt um 500 íslenska skáta hafi unnið að undirbúningnum. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira