Innlent

8 ára stúlka ávarpar mótmælafund

Boðað er til mótmælafundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Sem fyrr er yfirskrift fundarins "Breiðfylking gegn ástandinu". Þetta verður þrettándi mótmælafundurinn í röð og boða forsvarsmenn hans að róðurinn verði hertur til muna á nýju ári.

Ræðumenn fundarins verða þau Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir, kennari og grafiskur hönnuður, og Einar Már Guðmundsson rithöfundur.

Dagný Dimmblá, 8 ára skólastelpa, mun einnig ávarpa fundinn.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×