Dansóður skemmtistaðagestur sparkaði í andlit annars 3. janúar 2009 09:11 Frá miðbæ Reykjavíkur.
Afspyrnu rólegt var hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt, aðeins 48 verkefni eru bókuð í dagbók lögreglunnar frá kl. 23:00 í gærkvöldi til 07:00 í morgun. Ökumaður grunaður um ölvun við akstur í Garðabæ ók utan í tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur þeirra kastaðist á ljósastaur og skemmdist, allar bifreiðarnar þrjár eru nokkuð skemmdar. Ökumaðurinn gistir fangageymslur og bíður yfirheyrslu með morgninum Þá var bifreið ekið á ljósastaur á Suðurlandsbraut, tiltrög þess eru ókunn, tveir aðilar fluttir á slysadeild ekki vitaðu um meiðsl. Aðilarnir voru af erlendu bergi brotnir og sökum tungumálaerfiðleika var ekki unnt að ræða við þá að sinni um tildrög slyssins. 4 piltar á leið niður Hverfisgötu gerðu sér að leik að sparka í bifreiðar og brjóta af þeim spegla í námunda við danska Sendiráðið í nótt. Þá fengu nærliggjand stætóskýli að kenna á spörku og höggum, vitni að atburðinum kölluðu til lögreglu er handtók mennina við Lækjargötu. Þeir gátu ekki upplýst hvað þeim gekk til. Þeim var sleppt eftir skýrslutökur. Þá voru rúðubrjótar á ferð í höfuðborginni í nótt, 9 rúður brotnar í veitingahúsi í Hafnarfirði, tvær rúður brotnar í leikskóla í Breiðholti og ein stór rúða brotin í húsi í austurborginni. Þá varð dansæði eins gestar á skemmtistað í miðborginni þess valdandi að einn gestur lá óvígur eftir en dansarinn gerðist full ákafur í dansi sínum og stökk upp á borð og dansaði í hringi, í einum snúningnum þá sparkaði hann „óvart" í andlit eins gests með þeim afleiðingum að hann fékk högg við auga og skurð á augabrún og varð talsvert ringlaður á eftir, hann leitaði sér aðhlynningar á slysadeild. Dansarinn róaðist nokkuð við þetta og var frjáls ferða sinna. Að lokum má geta þess að líkt og Vísir hefur greint frá þá barst lögreglunni tilkynning kl 18:54 í gærkvöldi um að ungur maður vopnaður skotvopni væri staddur í Breiðagerði í Reykjavík. Allt tiltækt lögreglulið frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu og Sérsveit Ríkislögreglustjóra leituðu mannsins. Kl. 23:43 gaf maðurinn sig fram mótþróalaust, og afhenti lögreglu skotvopnið. Maðurinn er vistaður á viðeigandi stofnun meðan málið er rannsakað.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira