Veiða síld fyrir utan sjúkrahúsið Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. nóvember 2009 13:52 Síldarveiðar. Mynd/ Hafrannsóknarstofnun.
Síldveiðiskipið Faxi RE er nú á veiðum í Breiðafirði og að sögn skipstjórans, Alberts Sveinssonar, er síldin erfið viðureignar. Skipið fór til veiða síðastliðið fimmtudagskvöld og í gær var Faxi kominn með um 950 tonna afla. Stefnt er að því að ná fullfermi eða rúmlega 1500 tonnum en Albert segir að það ætli að reynast erfiðara en hann átti von á. „Aðstæður hafa verið vægast sagt leiðinlegar. Hér hefur verið strekkingur allan tímann og vindurinn stendur á land. Síldin heldur sig mjög nærri landi og hún gefur sig aðeins til eftir að það tekur að birta á morgnana og fram eftir degi en leið og það fer að skyggja þá dreifir hún sér og er óveiðanleg," er haft eftir Alberti á vef HB Granda. Að hans sögn hefur hann verið með skipið að veiðum í nágrenni Stykkishólms. „Við höfum verið hér sitthvoru megin við Hólminn, á Kiðeyjarsundinu og Breiðasundi og eitt kast tókum við fyrir framan sjúkrahúsið, ekki fjarri landi. Í dag höfum við ekkert getað kastað fram að þessu, enda höfum við ekki fundið neina síldartorfu til að kasta á," sagði Albert en rætt var við hann laust fyrir hádegið í dag. Síldin, sem Faxi hefur fengið fram að þessu, er af millistærð. Fjögur skip voru á svæðinu í morgun en aðeins eitt þeirra var búið að kasta er rætt var við Albert. Óvíst var um árangurinn.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira