Bankarnir þurfa ekki að auglýsa eignir 16. nóvember 2009 18:46
Nýju ríkisbankarnir þurfa ekki að auglýsa eignir sem þeir hafa tekið yfir og geta í raun selt hverjum sem er, hvenær sem er. Lög um opinber innkaup, sem gilda um kaup og sölu ríkiseigna, gilda ekki um sölu eigna nýju bankanna, Landsbankans, Nýja Kaupþings og Íslandsbanka. Samkvæmt reglugerð um ráðstöfun eigna ríkisins eru það Ríkiskaup sem bjóða eignir til sýnis og sölu með opinberri auglýsingu. Eignir bankanna verða því ekki seldar með þessum hætti, þrátt fyrir að um ríkisbanka sé að ræða. Þannig getur Landsbankinn, sem hefur tekið yfir mörg verðmæt fyrirtæki í gegnum dótturfélagið Vestia, í raun selt fyrirtæki eins og Vodafone og Húsasmiðjuna þegar bankanum hentar. Forsvarsmenn Vestia og bankastjórinn, Ásmundur Stefánsson, hafa þó sagt að eignir félagsins verði ekki seldar nema í opnu og gagnsæju útboðsferli. Það er hins vegar ekkert í settum lögum sem skyldar bankann til að athafna sig með þeim hætti og því ekki sama aðhald til staðar og ef um væri að ræða sölu almennra ríkiseigna. Með sama hætti getur Nýja Kaupþing selt Haga þegar bankanum hentar, þeim sem bankanum hentar. Stjórnvöld hafa þó gert kröfu um gagnsæ vinnubrögð við sölu eigna, án þess þó að lög setji bönkunum skorður í þessum efnum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira