Innlent

Efri skattmörk meðaltekna verði sex hundruð þúsund

Mynd/ GVA.
Mynd/ GVA.
Stíft hefur verið fundað um skattatillögur ríkisstjórnarinnar um helgina; bæði innan flokkanna og á milli þeirra. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir stefnt að því að leggja fyrstu tillögur fyrir ríkis­stjórnarfund á morgun.

Steingrímur segir að eftir sé að velja á milli ákveðinna tæknilegra leiða þegar kemur að þrepaskiptingu. Menn hafi sérstaklega verið að skoða jaðaráhrifin á mismunandi tekjuhópa.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að meðal þess sem standi út af er í hvaða þrepi staðsetja eigi millitekjufólk. Þá hafi það verið rætt að efra tekjumark þess þreps verði við sex hundruð þúsund krónur, ekki fimm hundruð líkt og fyrstu hugmyndir gáfu til kynna.

Steingrímur vildi ekki staðfesta það við Fréttablaðið; aldrei hefði neitt verið fast í tillögum. Menn hafi lagt fram ýmis dæmi og borið sig saman við þau. Því snúist þetta ekki um að breyta einhverju sem búið er að ákveða, heldur leggja fram hugmyndir og skoða áhrif þeirra.

„Mér finnst svolítil taugaveiklun í þessari umræðu, með fullri virðingu fyrir eðlilegum fréttaþorsta fjölmiðla. Það hefur takmarkað gildi að blása út fréttir sem eru kannski ekki einu sinni byggðar á staðreyndum," segir Steingrímur.

„Til dæmis fréttir um milljarðaskatt á ferðaþjónustuna sem allur ætti að renna til ríkissjóðs. Þetta er alveg út úr kortinu og hefur aldrei verið í myndinni. Það er fáránlegt hjá Ríkisútvarpinu að eyða besta fréttatíma sínum í svona rugl. Það hefði ekki þurft nema eitt símtal á mig til að skera úr um að þetta er ekki inni í myndinni."

Steingrímur segir nefnd að störfum um framtíðartekjumöguleika ferðaþjónustunnar; ríkið og greinin muni deila þeim tekjum með sér.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×