Framkvæmdastjórn sökuð um fordóma 5. janúar 2009 06:30 Dagdeild geðdeildar FSA verður lokað hinn 31. janúar næstkomandi, en til stendur að sameina starfsemi dag- og göngudeildar geðsviðs hinn 1. október. fréttablaðið/heiða „
Það blasir við að þarna býr eitthvað annað að baki en sparnaður. Það flögrar að manni að þarna sé um að ræða fordóma framkvæmdastjórnarinnar í garð geðsjúkra, því þeir liggja neðst í píramídanum,“ segir Kristján Jósteinsson, forstöðumaður dagdeildar geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri (FSA). Þann 30. desember síðastliðinn var tilkynnt um þá ákvörðun að loka dagdeildinni í núverandi mynd 31. janúar næstkomandi og sameina rekstur dag- og göngudeildar geðdeildar í nýju húsnæði þann 1. október. Sjö starfsmönnum dagdeildar var afhent uppsagnarbréf sama dag og ákvörðunin var tilkynnt. Fjárhagsrammi FSA á þessu ári verður þrengri en á síðasta ári sem nemur 250 til 300 milljónum króna. Teknar hafa verið nokkrar ákvarðanir til að bregðast við þeirri lækkun, meðal annars með uppsögnum rúmlega fjörutíu starfsmanna í tuttugu stöðugildum og fyrrgreindri tímabundinni lokun á dagdeild geðdeildar. Geðdeildinni var gert að skera niður kostnað um 17,5 milljónir á árinu 2009. Kristján segir dagdeildarþjónustu hafa verið helsta vaxtarbroddinn í þjónustu geðdeildarinnar síðustu ár. Starfsfólk deildarinnar sé því slegið yfir lokuninni. „Þetta er auðvitað mikið áfall. Með þessu er verið að færa geðdeildarþjónustu á landsbyggðinni mörg ár aftur í tímann. Auðvitað hefði átt að spara þessa upphæð með því að jafna niðurskurðinum á hinar þrjár deildir geðsviðsins, bráðamóttökudeild, dagdeild og göngudeild. Við lögðum á borð tillögur um 6,5 prósent sparnað án þess að skaða meðferðarkjarnann. Þetta er sláandi,“ segir Kristján, og bætir við að allt að fjörutíu sjúklingar á ári hafi sótt þjónustu á dagdeildina síðustu ár. Ætlunin hafi verið að fjölga þeim sjúklingum í fimmtíu til sextíu á yfirstandandi ári. Spurður um hugsanleg úrræði fyrir þennan sjúklingahóp í þá átta mánuði, frá febrúar til október, þar til starfsemi sameinaðrar dag- og göngudeildar á að hefjast er Kristján myrkur í máli. „Það eru engin önnur úrræði. Framkvæmdastjórnin hefur hugmyndir um að hægt sé að sinna þessu fólki á göngudeild, en það eru einungis orðin tóm. Göngudeildin annar ekki eftirspurn eins og staðan er í dag.“ Halldór Jónsson, forstjóri FSA, segir vissulega myndast ákveðið skarð í þjónustu geðdeildar með þessum aðgerðum. Hann vonast til að fyrr en síðar finni menn hinni sameiginlegu einingu ágætan farveg á nýjum stað. „Þetta er ákvörðun sem er tekin sameiginlega með stjórnendum geðdeildar og í henni liggja sannarlega möguleikar. Auðvitað vill enginn gera svona hluti, en menn vega og meta hvað þurfi undan að láta og víkja til hliðar. Þetta er eitt af því,“ segir Halldór Jónsson. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ Innlent Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent Fleiri fréttir „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Staðan ekki alvarleg í Haukadalsá Loka Bröttubrekku í tvo daga „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Skýr mynd dregin upp í dómsal og minningarstund Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Núverandi staða ekki talin vera alvarleg Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Metaðsókn og söfnunarmet slegið Sjá meira