Óttast að málshöfðunin sé að klúðrast 4. janúar 2009 18:30
Indefence hópurinn sakar íslensk stjórnvöld um sinnuleysi og doða í undirbúningi málshöfðunar gegn breska ríkinu og óttast að málið sé að klúðrast. Frestur Kaupþings til að höfða mál rennur út eftir þrjá daga. Talsmaður hópsins segir það amlóðaskap af ríkisstjórninni ef hún ætlar að láta sér þetta tækifæri úr greipum ganga. Fram hefur komið í fjölmiðlum að skilanefnd Kaupþings vinni hörðum höndum að því að undirbúa málshöfðun gegn breskum stjórnvöldum - en frestur til þess rennur út á miðvikudaginn. Indefence hópurinn sem hefur nú vikum saman reynt að rétta við ímynd Íslands vegna beitingu hryðjuverkalaganna og Icesave deilunnar, óttast hins vegar að tækifærið sé að renna okkur úr greipum. Hópurinn, sem hefur safnað rösklega 80 þúsund undirskriftum fólks sem hafnar því að Íslendingar séu hryðjuverkamenn, hélt í dag blaðamannafund. Tilefni fundarins var að þrýsta á stjórnvöld að höfða mál - og talsmenn hópsins greinilega farnir að örvænta um að stjórnvöld aðhafist nokkuð í þessu stóra hagsmunamáli. Bentu þeir meðal annars á að skuldsetning íslenska ríkisins í erlendri mynt yrði með Icesave ábyrgðum umtalsvert meiri en þegar Argentína lýsti yfir þjóðargjaldþroti fyrir fáum árum. Hópurinn lýsti eftir þeim myndugleika sem einkenndi íslenska ráðamenn í sjálfstæðisbaráttunni og þorskastríðinun. Einn talsmanna hópsins segir að þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar og tillögur hópsins til stjórnvalda hafi hópurinn verið daufheyrður.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira