Þorvaldur: Þetta er allt sama sullið Smári Jökull Jónsson skrifar 23. maí 2009 17:39 Þorvaldur ásamt Jóni Sveinssyni aðstoðarþjálfara Fram. Mynd/Heimasíða Fram
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var vitaskuld ekki ánægður með niðurstöðu leiksins í Keflavík í dag enda Framarar nærri því að ná í stig í Bítlabænum. "Mér fannst þetta nú ekki sanngjarnt. En það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum, mér fannst þetta ekki sanngjarnt en það skiptir ekki máli hvað mér finnst því við fengum ekkert fyrir leikinn í dag," sagði Þorvaldur í samtali við Vísi í leikslok. "Það vantar bara að setja boltann yfir þessa hvítu línu, hún er ansi erfið oft og þess vegna eru framherjar oft vandfundnir. Það vantaði herslumuninn að setja markið en boltinn rúllaði fínt hjá okkur og ég var nokkuð ánægður með spilið í 90.mínútur og menn voru að leggja sig fram. En það vantar aðeins upp á en ég vona að það komi og ef menn líta fram á veginn þá held ég að þetta verði allt í lagi." Aðspurður um Keflavíkurliðið sagði Þorvaldur. "Ég hugsa að það sé ekkert öðruvísi með Keflavíkurliðið en önnur lið í þessari deild, þetta er bara allt sama sullið. Alveg sama í hvað leik þú ferð þá er það alltaf erfitt. Keflavík vann 9 leiki af 11 hér í fyrra og við náðum sigri þá. Við verðum bara að einbeita okkur að okkar leik og reyna að safna stigum í pottinn," sagði Þorvaldur og bætti við að leikurinn í fyrra, þar sem Keflavík varð af titlinum, hefði ekki skipt neinu máli. "Það er svo langt síðan að menn muna ekki einu sinni hvernig sá leikur var. Þegar það liggur við að það líði heilt ár á milli móta hér á Íslandi þá eðlilega gleyma menn." Þorvaldur hrósaði Garðari Erni Hinrikssyni í leikslok. "Bæði í dag og í síðasta leik hefur dómgæslan verið mjög góð. Boltinn hefur fengið að rúlla og leikurinn að fljóta. Þó svo að leikurinn hafi virkað hægur til að byrja með vorum við að spila fínan fótbolta og við erum sáttir með það," sagði Þorvaldur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Fleiri fréttir Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Sjá meira