Cesc Fábregas: Arsenal er á erfiðum tímapunkti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2009 10:00 Cesc Fábregas er fyrirliði Arsenal. Mynd/AFP
Cesc Fábregas, fyrirliði Arsenal, viðurkennir að það muni reyna mikið á liðið í ensku úrvalsdeildinni í vetur eftir að liðið seldi lykilmennina Emmanuel Adebayor og Kolo Touré til Manchester City. „Við ætlum ekki að byrja tímabilið á að stefna á fjórða sætið. Það ganga öll lið í gegnum erfiðleika og við erum á erfiðum tímapunkti núna. Við þurfum bara að vera sterkari, standa saman og þá er ég viss um að þetta verði í góðu lagi hjá okkur," sagði Fábregas sem hefur ekki unnið titil með Arsenal síðan 2005. „Við höfum verið mjög óheppnir með meiðsli á síðustu þremur tímabilum og vonandi verða allir heilir á þessu tímabili. Það eru miklir hæfileikar í þessu liði og ég hef trú á því að við getum farið langt," sagði Fábregas. „Ég ætla að reyna að bæta allt í mínum leik og ég tel þetta vera rétta tímann fyrir mig að stíga eitt skref fram á við. Ef ég næ líka að skora fleiri mörk þá mun það hjálpa liðinu mikið," sagði Fábregas. Fábregas segist vera stoltur af unglingastarfi Arsenal. „Menn sáu Jack Wilshere í síðustu tveimur leikjum og þá er Fran Mérida farinn að spila líka með aðalliðinu. Hann kom hingað 15 ára gamall frá Barcelona og nú fjórum árum síðar er hann búinn að bæta sig mikið," sagði Cesc Fábregas. Cesc Fábregas segist líka vita að fleiri ungum og stórefnilegum leikmönnum hjá Arsenal því hann æfði mikið með varaliðinu þegar hann var meiddur á síðasta tímabili.
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Sjá meira