Gunnar: Of mikið að þurfa að skora fjögur mörk Smári Jökull Jónsson skrifar 25. júní 2009 21:21 Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar.
Þróttarar sitja sem fastast í fallsæti eftir leiki kvöldsins í Pepsi-deild karla. Gunnar Oddsson þjálfari þeirra var hundfúll eftir tapið gegn Keflvíkingum í kvöld. "Ég var mjög ósáttur að við skyldum fá þetta mark á okkur í upphafi síðari hálfleiks því mér fannst við hafa ágætis tök á leiknum í fyrri hálfleik, vera ívið sterkari þannig að maður er svekktur með þann kafla í leiknum," sagði Gunnar í samtali við Vísi í leikslok en markalaust var þegar liðin gengu til búningsherbergja. "Þeir voru ekki sannfærandi í fyrri hálfleik og við vissum að þeir myndu mæta grimmir og setja pressu á okkur. Við komum ágætlega til baka eftir það en það var bara ekki nóg. Svo er það auðvitað djöfullegt ef þeir skora ólöglegt mark í þokkabót, hann var langt fyrir innan þegar þeir skoruðu þriðja markið" bætti Gunnar við. Fyrir leikinn voru Þróttarar búnir að skora fæst mörk í deildinni og þrátt fyrir að hafa skorað tvö mörk í dag var sóknarleikur þeirra bitlaus á löngum köflum auk þess sem þeir fóru illa með tvö dauðafæri. "Það erum að fá ágætis færi í þessum leik en á meðan við þurfum að skora fjögur til að vinna leikina þá er það of mikið fyrir okkur. Við höfum verið að ráða ágætlega við varnarleikinn, að undanskildnum leiknum gegn FH, en skorað lítið og ljóst að við þurfum að ná þessu samspili milli varnar og sóknar," sagði Gunnar. Gunnar sagði of snemmt að hafa áhyggjur af stöðu liðsins þrátt fyrir að liðið væri í fallsæti. "Við vorum að klára sex leikja hrinu á útivelli á móti mjög sterkum liðum og erum búnir með þrjá leiki heima. Þetta snýst við hjá okkur núna, við höfum verið að taka stigin heima og höldum áfram að berjast í þessu," sagði Gunnar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Íslenski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Sjá meira