Petr Cech varði tvær vítaspyrnur og tryggði Chelsea Samfélagsskjöldinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2009 15:18 Leikmenn Chelsea fagna hér sigri í leiknum í dag. Mynd/AFP
Bikarmeistarar Chelsea eru búnir að vinna fyrsta titil tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann 4-1 sigur á Englandsmeisturum Manchester United í vítakeppni í leiknum um Samfélagsskjöldinn á Wembley í dag. Leiknum sjálfum lauk með 2-2 jafntefli. Þetta var þriðja árið í röð sem úrslitin í leiknum um Samfélagsskjöldinn ráðast í vítakeppni. Petr Cech varði víti frá Ryan Giggs og Patrice Evra en það var Salomon Kalou sem innsiglaði sigur Chelsea með því að skora úr fjórðu vítaspyrnu liðsins í röð. Þetta var fyrsta vítakeppnin sem Chelsea vinnur frá árinu 1998 en liðið var búið að tapa fimm vítakeppnum í röð. Þetta er í fjórða sinn sem Chelsea vinnur Samfélagsskjöldinn en liðið vann hann síðast árið 2005. Manchester United hafði byrjað síðustu tvö tímabil á því að vinna þennan árlega leik á Wembley. Carlo Ancelotti vann því titil í sínum fyrsta opinbera leik sem stjóri Chelsea. Wayne Rooney tryggði Manchester United jafntefli og þar með vítaspyrnukeppni með marki á annarri mínútu uppbótartíma eftir að hafa fengið stungusendingu frá Ryan Giggs inn fyrir vörnina. Það leit þó út fyrir að Rooney hafi verið rangstæður. Chelsea-liðið gerði mjög vel í að vinna sig aftur inn í leikinn eftir dapran fyrri hálfleik. Liðið sýndi með því styrk sinn eftir að United hafði sýnt mikla yfirburði í upphafi leiks. Það voru Ricardo Carvalho (52. mínútu) og Frank Lampard (71. mínútu) sem skoruðu mörk Chelsea í seinni hálfleiknum. Í sigurmarki Frank Lampard lá Patrice Evra meiddur á vellinum þegar Chelsea náði skyndisókn og reiddust leikmenn United yfir því að dómarinn hafði ekki stoppað leikinn. Nani skoraði fyrra mark United strax á 10. mínútu leiksins með skoti fyrir utan vítateig. Petr Cech átti þar að gera betur en hann hefur bætt fyrir þau mistök með frábærri markvörslu seinna í leiknum. Nani fór meiddur af velli í seinni hálfleik og hélt um öxlina sína. Manchester United-Chelsea 2-2 (1-4 í vítakeppni) 1-0 Nani (10.) 1-1 Ricardo Carvalho (52.) 1-2 Frank Lampard (71.) 2-2 Wayne Rooney (90.+2) Gangur vítakeppninnar: Chelsea 1 - Frank Lampard skorar (0-1) United 1 - Ryan Giggs, Petr Cech varði (0-1) Chelsea 2 - Michael Ballack skorar (0-2) United 2 - Michael Carrick skorar (1-2) Chelsea 3 - Didier Drogba skorar (1-3) United 3 - Patrice Evra, Petr Cech varði (1-3) Chelsea 4 - Salomon Kalou skorar (1-4) United 4 - Þarf ekki Chelsea 5 - Þarf ekki United 5 - Þarf ekki
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Sjá meira