Hafa lagað sig að lífi á bótum 17. nóvember 2009 05:30 Árni Páll Árnason
Atvinnulaus ungmenni á aldrinum 18 til 24 ára hafa mörg hver aðlagað sig því líferni að vera á bótum. Þetta kemur fram í niðurstöðum rýnihópagreiningar sem kynnt var á fundi norrænna atvinnumálaráðherra sem fram fór í Reykjavík í síðustu viku. Kannaðar voru aðstæður og viðhorf í fimm hópum, þremur í Reykjavík og tveimur á Suðurnesjum. Í greiningunni kemur fram að í mörgum tilvikum búi ungmennin í foreldrahúsum, hafi snúið sólarhringnum við og hafi hvorki áhuga á skóla né vinnu. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamála, segir að langtímaatvinnuleysi ungs fólks sé með alvarlegri vandamálum sem hér sé staðið frammi fyrir. „Það virðist vera vaxandi tilhneiging til að ungt fólk verði eins og utanveltu og finni sig hvorki á vinnumarkaði né í skólakerfinu. Langtímaatvinnuleysi getur svo líka leitt til ótímabærrar örorku í framhaldinu og þetta er auðvitað vandi sem takast verður á við,“ segir hann, en málið var til umfjöllunar á fundi norrænna atvinnumálaráðherra sem hér fór fram í síðustu viku. „Langtímaatvinnulaus ungmenni hér núna eru um þrjú þúsund og þetta verður okkar stærsta viðfangsefni núna,“ segir Árni Páll. Meðal þeirra vandamála sem staðið er frammi fyrir er að atvinnulausa fólkið unga lítur ekki á skólavist sem valkost í stöðu sinni. „Þau líta ekki til baka á veru sína í skóla að það sé einhver lausn, heldur sé það bara meira kvalræði. Þetta er því krefjandi viðfangsefni að binda betur saman menntakerfið og atvinnuleysistryggingakerfið en gert hefur verið hingað til,“ segir Árni. - óká
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira