Innlent

Lögreglan varar fólk við að skilja bíla eftir bensínlausa

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er heldur óskemmtileg reynsla að verða bensínlaus á miðri leið þegar farið er á milli staða. Sérstaklega á þetta við þegar slíkt kemur upp á stofnbrautum en þá er beinlínis hætta á ferðum, ekki síst í skammdeginu.

Þrjú mál af þessu tagi komu á borð lögreglunnar um helgina en í öllum tilfellum var um bensínlaus ökutæki að ræða. Eitt stöðvaðist á Vesturlandsvegi, annað á Bústaðavegi og það þriðja á Sæbraut. Þeim sem fyrir þessu verða ber að reyna að koma ökutæki út fyrir akbraut en á því er mikill misbrestur. Stundum er það svo að ökutæki eru skilin eftir ljóslaus á stofnbrautum og jafnvel ekki hirt um að kveikja á neyðarljósum.

Lögreglan segir að oftar en ekki sé látið hjá líða að tilkynna um slík mál til lögreglu og sömuleiðis séu engar ráðstafanir gerðar strax til að fjarlægja ökutæki af vettvangi. Af þessu skapist mjög mikil hætta fyrir aðra vegfarendur og þá er um fátt annað að velja fyrir lögreglu en að láta fjarlægja viðkomandi ökutæki með kranabifreið á kostnað umráðamanns eða eiganda. Það sama eigi við um biluð ökutæki sem séu skilin eftir í umferðinni með sama hætti. Í ljósi þessa hvetur lögreglan ökumenn til að sýna meiri ábyrgð og stuðla þannig að eigin öryggi sem og annarra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×