Finnst Strauss-Kahn skauta létt yfir 17. nóvember 2009 04:45 Gylfi finnst Strauss-Kahn skauta létt yfir. Mynd/Anton Brink „
Ég vil ekki halda því fram að framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi farið með staðlausa stafi. Mér fannst hann skauta létt yfir þessa tengingu en hann verður að bera ábyrgð á því sjálfur," sagði Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á Alþingi í gær. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti máls á því að í bréfi til Gunnar Sigurðssonar leikstjóra og fleiri Íslendinga, héldi Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri AGS, því fram að AGS hefði aldrei gert samninga um Icesave að skilyrði fyrir endurskoðun efnahagsáætlunar sjóðsins fyrir Ísland, Birgir sagði þessa yfirlýsingu stangast á við ýmislegt sem Gylfi Magnússon og margir fleiri hafa haldið fram hér á landi. Birgir spurði Gylfa hvort hann teldi að framkvæmdastjóri AGS væri ekki að fara með rétt mál í bréfinu. Gylfi sagði að það væri rétt að enginn hafi viljað „sitja uppi með þá heitu kartöflu" að hafa neitað málum Íslands um framgang innan AGS vegna Icesave. Í sjálfu sér væri það karp um keisarans skegg hvort það voru ríkisstjórnir Norðurlandanna eða AGS sem réði því að þetta skilyrði var sett. Hvort heldur er, hafi þetta legið fyrir mánuðum saman að niðurstaða fengist ekki fyrr en búið væri að semja um Icesave.- pg
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira