Brennisteinsvetni mælist yfir mörkum 17. nóvember 2009 05:15 Í nýjum virkjunum Orkuveitunnar verður mengunarbúnaður sem minnkar útstreymi brennisteinsvetnis um 90 prósent.fréttablaðið/gva
Hæstu toppar brennisteinsvetnismengunar í Hveragerði fara yfir heilsuverndarviðmið Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), en sólarhringsmeðaltal er töluvert undir þeim viðmiðum. Þetta kemur fram í mælingum Umhverfisstofnunar. Engin viðmið eru til hér á landi um þessa mengun, en þau eru í vinnslu í umhverfisráðuneytinu. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá stofnuninni, segir tilgangslaust að horfa til vinnuverndarmarka í þessu sjónarmiði, en Orkuveita Reykjavíkur miðar við þau í frétt á heimasíðu sinni sem rataði í fjölmiðla um helgina. „Vinnuverndarmörkin eiga ekkert erindi í þessa umræðu,“ segir Þorsteinn. Ástæðan sé sú að vinnuverndarmörk verndi ekki heilsu þeirra sem eru viðkvæmir fyrir og gilda aðeins á vinnustöðum. Þau miði jafnvel við að grípa þurfi til ryk- og gasgríma og séu oft 100 sinnum hærri en þau sem gildi fyrir almenning. Þorsteinn segir brennisteinsvetnismengun í Reykjavík hafa aukist með tilkomu virkjana Orkuveitunnar á Hellisheiði. Fólk, sérstaklega í austurborginni, geti fundið fyrir ógleði og höfuðverkjum vegna hennar, sérstaklega í froststillum. Mælingar í Hveragerði eru nýhafnar og því ekki til samanburðartölur yfir vetrartímann.- kóp
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira