Lögreglumenn sæti vopnaleit í Leifsstöð 17. nóvember 2009 05:45 Á fimmtudaginn í síðustu viku sagði Fréttablaðið frá því að leitað hefði verið á forseta Alþingis í Leifsstöð og rakti blaðið af því tilefni hverjir væru undanþegnir slíkri leit. Eitthvað virðist málum blandið hverjir tilheyra þeim hópi.
Ósamræmi er milli þess sem flugmálastjórn segir um það hverjir eiga að vera undanþegnir öryggisleit í Leifsstöð og þess sem Keflavíkurflugvöllur ohf. segir vera sína starfsvenju. Í Fréttablaðinu síðasta fimmtudag var haft eftir Friðþóri Eydal, fulltrúa hjá Keflavíkurflugvelli ohf., að meðal þeirra sem undanþegnir séu leit í öryggishliðum Leifsstöðvar séu tollverðir og lögreglumenn. Það sé í samræmi við fyrirmæli frá flugmálastjórn. Þegar Fréttablaðið leitaði eftir því að fá skriflegan lista yfir þá sem eru undanþegnir öryggisleitinni reyndist ekki unnt að útvega slíkt skjal. Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi flugmálastjórnar, segir hins vegar ljóst að hvorki lögreglumenn né tollverðir séu undanþegnir. „Það á að leita á þeim eins og öllum öðrum sem fara inn á svæðið.“ segir Valdís. Undanþegnir séu aðeins forsetinn, forsætisráðherrann og makar þeirra auk erlendra þjóðhöfðingja sem eru hér í opinberri heimsókn og sérstaklega sé tilkynnt um frá utanríkisráðuneytinu. Friðþór Eydal segir hins vegar að um einhvern misskilning hljóti að vera að ræða hjá flugmálastjórn. Undanþágan fyrir tollverði og lögreglumenn sé stjórnvaldsaðgerð sem rúmist innan tilmæla frá Alþjóðaflugmálastofnuninni og samtökum flugmálastofnana í Evrópu. „Þetta eru menn sem starfs síns vegna þurfa að vera þarna. Þetta á til dæmis við um vopnaða lögreglu,“ fullyrðir Friðþór sem ítrekar þó að allir hefðbundnir starfsmenn í Leifsstöð, þar með talinn forstjórinn sjálfur, þurfi að sæta vopnaleit og geri það í sérstöku starfsmannahliði á fyrstu hæð. Upplýsingafulltrúi flugmálastjórnar tekur ekki undir með Friðþóri varðandi tollverðina og lögreglumennina. „Það eiga allir að fara í þessa skimun. Ef þeir eru með vopn vegna sinnar vinnu þarf að láta vita af því þegar þeir koma í skimunina,“ segir Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir.gar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira