Leysa einungis úr ágreiningsmálum 17. nóvember 2009 05:30 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Persónuvernd hefur hafnað því að úrskurða um lögmæti kortavefsjár sem opin var á vefsíðu Kópavogsbæjar. Ástæðan er sú að vefsjánni var lokað eftir að íbúi í bænum kærði hana til Persónuverndar. „Forsenda þess að Persónuvernd taki málið til efnislegrar afgreiðslu er að fyrir liggi ágreiningur. Þar sem ekki fæst séð að ágreiningur sé lengur til staðar mun Persónuvernd ekki aðhafast frekar í málinu nema frá yður berist sérsök, rökstudd beiðni þar að lútandi," segir í svari Persónuverndar til íbúans sem kærði vefsjána. Eins og kom fram í Fréttablaðinu 30. október síðastliðinn taldi kærandinn meðal annars að teikningar af híbýlum manna á vefsjánni gætu auðveldað innbrotsþjófum iðju sína. Í bréfi til Persónuverndar tók Þórður Clausen Þórðarson bæjarlögmaður undir sjónarmið íbúans. „Enginn vafi er á því að hægt er að nota þessar upplýsingar í vafasömum tilgangi og engin ástæða til þess að þær séu aðgengilegar öllum," sagði bæjarlögmaður sem kvaðst enn fremur telja vafa leika á að vefsjáin stæðist lög. „Þetta bréf svarar ekki spurningum okkar um birtingu upplýsinganna, en við lokuðum fyrir aðgang að vefnum þangað til afstaða Persónuverndar lægi fyrir. Við munum að sjálfsögðu ræða við Persónuvernd um málið og svo að líkindum opna fyrir vefinn aftur í einhverri mynd," segir Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi hjá Kópavogsbæ. - gar
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira