Engin lögbundin GSM-viðmið notuð 16. september 2009 04:45 Ísland Í ESB eru viðmiðunarmörk fyrir rafsegulsvið á GSM-tíðni tíu vött en í Sviss eru þau 0,4 vött. Svo lág mörk fást með því að fjölga sendum og draga úr afli hvers og eins, segir í skýrslu fyrirtækisins Héloga.Fréttablaðið/hari
Engin lögbundin viðmiðunarmörk gilda á Íslandi um hámarksstyrk GSM-senda. Geislavarnir ríkisins miða þó við sömu mörk og Evrópusambandið mælir með. „Það er margt við þessi viðmiðunarmörk sem þarf að skoða og rannsaka, við tökum alveg undir það,“ segir Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörnum ríkisins. Öll geislun eigi að vera eins lág og hægt sé að komast af með. Lesendur hafa haft samband við blaðið til að þakka fyrir að greint hafi verið frá fjölskyldu á Egilsstöðum sem fann fyrir óþægindum eftir að GSM-mastur var sett upp á hæð fyrir ofan hús hennar. Þessir lesendur segjast sumir hafa fundið fyrir svipuðum óþægindum í Reykjavík. Fjölskyldan á Egilsstöðum flúði úr húsinu uns slökkt var á sendinum. í skýrslu sem rafgæðamælingafyrirtæki gerði fyrir fjölskylduna kemur fram að í löndum eins og Sviss, Ítalíu og Kína séu viðmiðunarmörk fyrir GSM-aflþéttni mun lægri en hjá Evrópusambandinu. Þorgeir Sigurðsson segir að starfsmenn Geislavarna hafi heyrt af þessum lægri viðmiðum. Hins vegar telur hann ólíklegt að í löndunum sé farið eftir svo lágum mörkum í einu og öllu. Það leiddi að líkindum til verra farsímasambands. Hann bendir á að athygli norrænna geislavarna sé meiri á símtólunum sjálfum heldur en sendunum og vísar í samnorræna skýrslu sem segir að geislun sú sem fólk verði fyrir af sendunum sé hundrað til tíu þúsund sinnum undir viðmiðunarmörkum Alþjóða geislavarnarráðsins og miklu minni en sú sem það verði fyrir af símunum sjálfum. Frá sendunum stafi þó stöðugum bylgjum, ólíkt símunum. Spurður hvort Geislavarnir ríkisins hafi mælt útsendingu Egilsstaðasendisins, segir Þorgeir nei. En svo mikið hafi verið talað um sendinn að ekki sé ólíklegt að það verði gert. „Við kíkjum ekki á öll farsímamöstur, það hefur ekki verið talin ástæða til þess,“ segir hann. Annan daginn í röð svaraði bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs ekki skilaboðum blaðsins.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira