Enski boltinn

Þarf að velja á milli Blackburn og Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard á æfingu með Liverpool.
Steven Gerrard á æfingu með Liverpool. Nordic Photos / Getty Images

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, þarf að velja hvort hann ætlar að nota Steven Gerrard gegn Blackburn á morgun eða gegn Chelsea í Meistaradeildinni á þriðjudag.

Gerrard meiddist í fyrri leik Liverpool gegn Chelsea í Meistaradeildinni nú í vikunni og eru meiðsin alvarlegri en í fyrstu var óttast.

„Hann getur ekki spilað tvo leiki á fjórum dögum með þessi meiðsli. Ég þarf að velja hvort ég á að nota hann gegn Blackburn eða gegn Chelsea," sagði Benitez. „Ef hann spilar gegn Blackburn þýðir það samt ekki að við séum búnir að afskrifa okkar möguleika í Meistaradeildinni."

Það er ljóst að Gerrard muni ekki geta spilað með Liverpool hverja einustu mínútu í þeim leikjum sem eftir eru á tímabilinu.

„Ef hann treystir sér til að spila þá mun hann spila og við metum ástandið eftir leikinn," sagði Benitez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×