Enski boltinn

Styttist í endurkomu Robinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Robinho.
Robinho. Nordic Photos / Getty Images

Mark Hughes, knattspyrnustjóri Man. City, hefur staðfest að stutt sé í að Brasilíumaðurinn Robinho snúi aftur á völlinn með liðinu.

Robinho hefur verið frá vegna ökklameiðsla síðan í ágúst. Það hefur ekki haft nein áhrif á gengi liðsins sem hefur verið afar gott.

Svo lítið hefur City reyndar saknað leikmannsins að þegar er byrjað að orða hann við sölu til Barcelona í janúar.

Þrátt fyrir það segir Hughes að Robinho sé enn lykilmaður sem hann sjái fyrir sér áfram í búningi félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×