Marel Baldvinsson: Hafa hugmyndaflugið í lagi Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. júní 2009 22:36 Marel hér í baráttunni í kvöld. Mynd/Anton „
Það hafa örugglega ekki mörg lið komið hingað og verið svona þétt varnarlega. Ég og Helgi vorum fremstir og vorum fyrir aftan miðju," sagði kátur Marel Baldvinsson eftir sigur sinna manna í Kópavogi í kvöld. „Við unnum þetta vel varnarlega því við vitum að Blikar eru með eitt best spilandi lið í deildinni. Við vissum að við yrðum í vandræðum ef við myndum opna okkur á móti þeim. Þetta var uppleggið, að liggja langt til baka, vera þéttir og vera með varnarfærsluna í lagi og við gerðum það virkilega vel í dag því þeir náðu ekkert að opna okkur. „ „Sóknarhluturinn af planinu gekk ekki alveg því við ætluðum að sækja hratt á þá en við fundum ekki menn þegar við unnum boltann. Þá kýldum við fram og töpuðum boltanum strax aftur. Við vorum þess vegna fyrst og fremst í varnarvinnu en þegar upp er staðið skipta það ekki máli því við skoruðum eitt og þeir ekki neitt. Við erum sáttir við gríðarlega mikilvæg þrjú stig," sagði Marel. Marel er vanur því að klæðast grænu á Kópavogsvellinum og gat ekki neitað því að það hafi verið furðulegt að klæðast rauðu á gamla heimavelli sínum. „Það var furðuleg tilfinning, aðallega fyrir leikinn að fara inn í klefa gestaliðsins en ekki heimaliðsins eins og maður er vanur. Þegar leikurinn var hafinn gleymdi maður því og þá var þetta bara leikur sem maður reyndi að vinna," sagði Marel sem lét stuðningsmenn Blika ekki slá sig útaf laginu. „Ég reyndi ekki að gera það og hafa bara gaman að því. Þeir eru með hugmyndaflugið í lagi, þeir mega eiga það. Þetta er magnað uppátæki," sagði Marel og vísaði þar til peningsins margfræga sem birtur var hér á Vísi.is fyrr í dag.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Þróttur og HK á toppnum Íslenski boltinn Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram „Við hlógum bara að því“ Anton Ari í Kópavogi til 2028 Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Sjá meira