„Ekki mér að kenna hvað þið eruð lélegir" Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. ágúst 2009 14:36 Ásmundur Arnarsson. Mynd/Daníel
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, ritar áhugaverða hugvekju á heimasíðu félagsins í dag. Þar kemur hann meðal annars inn á dómaramál. Segir hann meðal annars frá því að Eyjólfur Magnús Kristinsson dómari hafi sagt að við leikmenn Fjölnis að það sé ekki honum að kenna hvað þeir séu lélegir. Hér að neðan má lesa pistil Ásmundar. Ágætu stuðningsmenn! Sumarið 2009 hjá mfl karla félagsins í knattspyrnu hefur vissulega valdið vonbrigðum eftir góðan stíganda síðastliðin ár. Sérstaklega hafa 2 síðastliðin ár verið ánægjuleg og mikil vakning orðið kringum liðið í Grafarvogi og stuðningurinn frábær. Við eigum orðið einn flottasta stuðningsmannaklúbb landsins og sífellt fleiri hafa komið að starfinu og á völlinn. Það var ljóst fyrir mót að liðið var mikið breytt frá fyrra ári og margir reynsluboltar farnir. Menn voru meðvitaðir um það að við gætum lent í vandræðum en ef liðið myndi smella saman þá væri hægt að gera góða hluti. Veturinn gekk ágætlega og mörg góð úrslit gáfu mönnum góð fyrirheit og við lögðum bjartsýnir af stað í mótið. Mótið fór ekki vel af stað hjá okkur. Meiðsli og bönn geta verið hluti af skýringunni en það skiptir í sjálfu sér ekki máli. Eftir 9 leiki voru 4 stig komin í hús sem einfaldlega var ekki nógu gott. Við gerðum róttækar breytingar á okkar áherslum og það virtist vera að skila sér, næstu 5 leikir gáfu 8 stig og menn komnir með sjálfstraust á ný og bjartsýnir á framhald mótsins. Síðasta vika þróaðist eins ílla og mögulegt var fyrir okkur Fjölnismenn. Við áttum heimaleik gegn Þrótti og útileik gegn ÍBV og ljóst að með góðum úrslitum í þessum leikjum hefði staðan orðið vænleg. Tap í þessum tveimur leikjum ásamt því að liðin fyrir ofan okkur unnu sína leiki setur Fjölni í verulega slæm mál þegar 6 umferðir eru eftir af mótinu. ÞÁTTUR DÓMARANS! Það er alþekkt þegar ílla gengur að þá sjá menn betur þær ákvarðanir dómarans sem eru á móti viðkomandi og menn telja rangar. Metnaður leikmanna Fjölnis er mikill og menn ætluðu sér stóra hluti í þessum leikjum og þegar ekki gekk sem skyldi þá féllu menn því miður í þá gryfju að einbeita sér of mikið af störfum dómarans frekar en að einbeita sér að eigin leik. Dómarar geta haft mikil áhrif á spennustig leikja og í fallbaráttu leikjum þar sem mikið er undir eins og í síðustu tveimur leikjum okkar reyndi verulega á þennan þátt. Gunnar Már lenti t.d. frekar ílla í því þar sem dómarinn sá því miður ekki ítrekuð brot gegn honum, en var fljótur að veita honum viðvörun og áminningu þegar hann reyndi að benda dómaranum á það. Þetta er hlutur sem Gunni er orðinn nokkuð vanur, því einhverra hluta vegna virðist dómurum oft finnast að hann eigi að standa af sér viðkomandi brot þar sem hann sé stór og sterkur. Lið hafa oft á tíðum gert út á þetta og í þessu tilviki tókst vel til og Gunni endaði á því að missa algjörlega stjórn á sér, slíku óréttlæti fannst honum hann vera beittur. Gunni gerði hluti í framhaldinu sem hann sér mjög mikið eftir og biður að sjálfsögðu alla Fjölnismenn afsökunar á því. Í Eyjum lendum við í því að það eru þó nokkrar ljótar tæklingar í gangi sem dómarinn virðist ekki sjá og setningar frá dómaranum eins og „það er ekki mér að kenna hvað þið eruð lélegir“ hjálpa ekki til við að halda spennustiginu niðri. Þegar Andri Steinn lendir í því að einn leikmaður eyjamanna stekkur með báða sólana í sitt hvorn ökklann missir hann einnig stjórn á sér í augnablik og stendur ógnandi upp. Sami leikmaður hafði nefnilega sloppið ítrekað með svipaðar tæklingar. Dómarar leiksins meta þetta tvennt sem álíka óíþróttamannslegar framkomur og báðir fá sitt seinna gula spjald. Ég tel að í báðum þessum leikjum hefði dómarinn getað gert betur í að halda spennustiginu niðri. Það eru hins vegar okkar mistök að missa stjórn á okkur. Leikmenn eiga að vita betur enda tökum við út okkar refsingu fyrir það. Við vitum sem er að dómarinn er hluti af leiknum og án hans færi enginn leikur fram. Dómarinn mætir til leiks í hvert sinn til að gera sitt besta eins og leikmenn og staðreyndin er sú að oftast gera dómarar mun færri mistök en leikmenn sjálfir. Það er hins vegar oft þægileg leið að benda á mistök dómarans frekar en að greina eigin mistök. MÓTIÐ Leikmenn og þjálfarar Fjölnis hafa sjálfir komið sér í þá stöðu sem liðið er í og enginn nema við sjálfir getum bjargað okkur úr þessari stöðu. Leikmenn eru staðráðnir í því að láta utanaðkomandi þætti ekki trufla einbeitningu sína í því verkefni að halda Fjölni uppi í efstu deild í knattspyrnu og við sem komum að liðinu munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að það geti orðið. Ég vil skora á alla Fjölnismenn nær og fjær, unga sem aldna að leggja hönd á plóg til að hjálpa okkur í þessu verkefni með því að mæta áfram á völlinn og styðja liðið áfram í þeirri baráttu sem framundan er. Brekkan er vissulega brött og margt þarf að ganga upp en meðan einhver möguleiki er enn til staðar höfum við trú á verkefninu og ætlum okkur að láta það ganga upp. Næsta laugardag er leikur gegn FH á heimavelli okkar í Dalhúsum og 4 Fjölnismenn í banni. Það koma að sjálfsögðu sprækir menn inn í staðinn en vonandi fáum við líka extra kraft með góðum stuðningi áhorfenda það sem eftir lifir móts. Allir á völlinn - Áfram Fjölnir Ásmundur Arnarsson Þjálfari
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Handbolti Uppgjörið: Valur - Fram 1-2 | Endurkomusigur hjá Fram Íslenski boltinn Ræddi metið við son Tryggva: „Myndi skipta mig miklu máli að ná þessu meti“ Íslenski boltinn Upgjörið: Vestri - KA 1-0 | Vestri á Ísafirði er alltaf Vestri Íslenski boltinn Segja Andra Lucas til sölu Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 0-2 | Blikar ekki í vandræðum í Eyjum Íslenski boltinn Leik lokið: Afturelding - ÍA 4-1 | Mosfellingar upp úr fallsæti Íslenski boltinn „Mjög ryðguð en furðu fljótt fór rykið af mér“ Íslenski boltinn Markalaus en öruggur opnunarleikur í Miami Fótbolti Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Afturelding - ÍA 4-1 | Mosfellingar upp úr fallsæti „Liggjum á þeim allan tímann en inn vildi boltinn ekki“ „Það er trú, power, orka og bara gæði í þessu Fram liði“ Uppgjörið: Valur - Fram 1-2 | Endurkomusigur hjá Fram Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 0-2 | Fyrsta tap toppliðsins kom í Garðabæ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 0-2 | Blikar ekki í vandræðum í Eyjum Upgjörið: Vestri - KA 1-0 | Vestri á Ísafirði er alltaf Vestri Uppgjörið: FHL - Víkingur 0-4 | Víkingur valtaði yfir botnliðið „Mjög ryðguð en furðu fljótt fór rykið af mér“ Ræddi metið við son Tryggva: „Myndi skipta mig miklu máli að ná þessu meti“ „Erum sjálfum okkur verstir“ „Heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna“ „Meira getur maður ekki beðið um“ Uppgjörið: Stjarnan - Valur 3-2 | Heimamenn í Evrópubaráttu með góðum sigri Njarðvík með öflugan endurkomusigur gegn Þór Heitir Valsmenn fara á toppinn með sigri Pedersen í tvö hundruð leikja klúbbinn í kvöld: „Skiptir mig miklu máli“ ÍR áfram taplaust á toppnum eftir sigur í Breiðholtsslag Jón Gnarr heiðursgestur á Breiðholtsslag í fótbolta Þrjár Guðmundsdætur í liði KR og Albert mætti Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit Bíða eftir gúmmíi og spila á Þórsvelli eins og stelpurnar Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Þróttur fékk kröftugan framherja sem þarf að bíða fram að stórleiknum Breiðablik búið að semja við Damir „Auðvitað þyrstir okkur í sigur sem fyrst“ Harma ljót orð í Dalnum og lofa bættri gæslu ÍR og Njarðvík áfram taplaus Sjá meira