Fyrirvararnir kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag 15. ágúst 2009 15:15 Steingrímur J. Sigfússon. Mynd/Daníel Rúnarsson
Þær breytingartillögur sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis samþykkti í nótt varðandi Icesave samkomulagið kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag við Breta og Hollendinga, að mati Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir fyrirvaranna það mikla að gera verði Bretum og Hollendingum nýtt tilboð. Ráðherrann segist vera sáttur með efnislega niðurstöðu fjárlaganefndar. „Ég tel að þetta séu málefnalegir, sanngjarnir og útskýranlegir skilmálar sem að viðsemjendur okkar hafa vonandi skilning á." Steingrímur er mjög ánægður með að fjárlaganefnd hafi lokið afgreiðslu málsins. „Það góða fólk á hrós og heiður skilið fyrir mikla vinnu. Í öðru lagi er ég afar ánægður með þá breiðu samstöðu sem tókst um afgreiðslu málsins. Ég held að þetta sé málinu sjálfinu, þjóðinni og þinginu mjög til framdráttar."
Tengdar fréttir Samkomulag um Icesave Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir. 15. ágúst 2009 06:14 Þór Saari sáttur með niðurstöðuna „Við lögðum fram margvíslegar breytingartillögur og fengum þær allar inn. Þess vegna erum við með. Annað hefði verið óheiðarlegt,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Álitið var afgreitt út úr nefndinni í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. 15. ágúst 2009 11:28 Höskuldur: Ekki komið til móts við framsóknarmenn Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, segir að það hafi alltaf verið vilji hjá flokknum að reyna að ná fram þverpólitískri sátt í Icesave málinu. Hins vegar hafi ekki verið komið til móts við flokkinn og því hafi farið sem fór. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn styðja breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar vegna Icesave. 15. ágúst 2009 12:09 Samkomulag í höfn Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks, líkt og greint var frá hér á Vísi í morgun. 15. ágúst 2009 09:17 Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Fleiri fréttir Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Sjá meira
Samkomulag um Icesave Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir. 15. ágúst 2009 06:14
Þór Saari sáttur með niðurstöðuna „Við lögðum fram margvíslegar breytingartillögur og fengum þær allar inn. Þess vegna erum við með. Annað hefði verið óheiðarlegt,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Álitið var afgreitt út úr nefndinni í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. 15. ágúst 2009 11:28
Höskuldur: Ekki komið til móts við framsóknarmenn Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, segir að það hafi alltaf verið vilji hjá flokknum að reyna að ná fram þverpólitískri sátt í Icesave málinu. Hins vegar hafi ekki verið komið til móts við flokkinn og því hafi farið sem fór. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn styðja breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar vegna Icesave. 15. ágúst 2009 12:09
Samkomulag í höfn Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks, líkt og greint var frá hér á Vísi í morgun. 15. ágúst 2009 09:17