Höskuldur: Ekki komið til móts við framsóknarmenn 15. ágúst 2009 12:09 Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, segir að það hafi alltaf verið vilji hjá flokknum að reyna að ná fram þverpólitískri sátt í Icesave málinu. Hins vegar hafi ekki verið komið til móts við flokkinn og því hafi farið sem fór. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn styðja breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar vegna Icesave. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. Borgarahreyfingin mun skrifa upp á álit meirihluta nefndarinnar en Sjálfstæðisflokkurinn skila séráliti en lýsa því yfir að hann styðji breytingatillögur meirihlutans. Framsóknarmenn styðja ekki breytingatillögurnar og skila séráliti. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir að reynt hafi verið til þrautar að ná samkomulagi við Framsóknarmenn en það hafi ekki tekist. Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður framsóknarflokks í fjárlaganefnd, segist hafa upplifað það svo að ekki hafi verið raunverulegur vilji til að semja við flokkinn um lagalega fyrirvara. „Við fengum ekki tækifæri til að útfæra okkar tillögur. Þeim var hafnað áðan þess að menn vildu skoða þær. Þess vegna fór sem fór," segir þingmaðurinn. Höskuldur segir að það hafi alltaf verði vilji framsóknarmanna að reyn að þverpólitískri lausn í málinu. „Það sem gerðist í nótt var í rauninni að að Icesavesamningarnir, sem 3000 manns mótmæltu á Austurvelli, voru samþykktir varla innan samninganna." Í fyrirvörum meirihlutans er hinu svo kallaða Brussel ákvæði haldið til haga, sem kveður á um að tekið skuli tillit til hinnar erfiðu og fordæmalausu stöðu Íslands. Þá er fallið frá ákvæði um að greiðslur skuli miðast við 3,5% af landsframleiðslu, en þess í stað sett inn ákvæði um þak á greiðslum Íslands, þannig að ef engin aukning verði í landsframleiðslu og hagvöxtur aukist ekki, falli greiðslur niður á því tímabili. Einnig er ákvæðinu sem kennt er við Ragnar Hall hæstaréttarlögmann haldið til haga. Guðbjartur Hannesson telur að Bretar og Hollendingar ættu að geta unað við þessa fyrirvara. Í þeim sé tekið fram að rísi ágreiningur milli þjóðanna um framkvæmd samningsins skuli sest að samningaborði. Náist ekki niðurstaða þar sé það Alþingis að taka ákvörðun um það hvort ríkisábyrgð ríkissjóðs Íslands vegna samningsins falli niður.
Tengdar fréttir Samkomulag um Icesave Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir. 15. ágúst 2009 06:14 Þór Saari sáttur með niðurstöðuna „Við lögðum fram margvíslegar breytingartillögur og fengum þær allar inn. Þess vegna erum við með. Annað hefði verið óheiðarlegt,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Álitið var afgreitt út úr nefndinni í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. 15. ágúst 2009 11:28 Samkomulag í höfn Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks, líkt og greint var frá hér á Vísi í morgun. 15. ágúst 2009 09:17 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Sjá meira
Samkomulag um Icesave Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir. 15. ágúst 2009 06:14
Þór Saari sáttur með niðurstöðuna „Við lögðum fram margvíslegar breytingartillögur og fengum þær allar inn. Þess vegna erum við með. Annað hefði verið óheiðarlegt,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Álitið var afgreitt út úr nefndinni í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. 15. ágúst 2009 11:28
Samkomulag í höfn Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks, líkt og greint var frá hér á Vísi í morgun. 15. ágúst 2009 09:17