Afbrotum fækkaði um þriðjung í Reykjavík 1. janúar 2009 17:20
Samkvæmt bráðabirgðatölum fækkaði sérrefsilagabrotum í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 30% á seinasta ári í samanburði við árið 2007. Á sama tímabili fækkaði umferðarlagabrotum um 15% en hegningarlagabrotum fjölgaði hinsvegar um 10%. Munar þar mestu um aukningu hnupl- og fjársvikamála. Þetta kemur fram í úttekt á afbrotum og verkefnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2008. Þegar hegningarlagabrot eru skoðuð sérstaklega kemur í ljós að auðgunarbrotum fjölgaði verulega milli ára, einkum þjófnuðum. Innbrotum fjölgaði um 14% á milli ára og hnuplmálum um rúmlega 43 prósent. Kynferðisbrotum fækkar árið 2008 eftir nokkra fjölgun árið áður. Hafa ber í huga að lög um kynferðisbrot tóku breytingum árið 2007 sem líklega hefur nokkuð um fjölgun tilkynninga það ár að segja. Ofbeldisbrotum fækkar einnig milli ára, eða um 17 prósent, eftir nokkra fjölgun árið 2007. Eignaspjöllum fækkar milli ára, mest er fækkunin í veggjakrotsmálum en einnig fækkar rúðubrotum nokkuð. Þegar sérrefsilagabrot eru skoðuð sérstaklega kemur í ljós að brotum gegn áfengislögum hefur fækkað um næstum helming milli ára, einkum vegna færri brota vegna ölvunar á almannafæri. Fíkniefnabrotum fækkar einnig verulega. Nokkru meira var tekið af hassi árið 2008 en árið á undan, en um er að ræða svipað magn og árið 2006. Einnig var tekið meira af maríjúana, ecstasy og kókaíni árið 2008 samanborið við árið 2007 en minna af amfetamíni.
Mest lesið „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira