Hver er þessi Federico Macheda? 5. apríl 2009 18:01 AFP
Framherjinn Federico Macheda sló í gegn þegar hann tryggði Manchester United 3-2 sigur á Aston Villa með marki í uppbótartíma. En hver er þessi 17 ára gamli piltur? Macheda gekk í raðir Manchester United í september árið 2007 og skrifaði undir atvinnumannasamning um það bil ári síðar. Hann er fæddur og uppalinn í Róm og lék með unglingaliði Lazio. Félagar hans í United-liðinu kalla hann "Kiko" og hefur honum verið lýst sem einhverju mesta efni sinnar kynslóðar á Ítalíu. Fyrst um sinn var Macheda í U-18 ára liði United, en Ole Gunnar Solskjær var fljótur að kippa honum inn í varaliðið þegar hann kom auga á hæfileika piltsins, sem var markahæsti leikmaður U-18 ára liðsins á sínu fyrsta ári með 12 mörk í 21 leik. Hann var valinn í Evrópuhóp Manchester United og fékk sitt fyrsta tækifæri með aðalliðinu í deildinni í dag. Macheda þykir sterkur á boltann, hafa næmt auga fyrir staðsetningum og er góður að klára færi líkt og hann sýndi með eftirminnilegum hætti á Old Trafford í dag. "Þetta var frábær dagur fyrir mig, því mig hafði dreymt um að skora í mínum fyrsta leik fyrir Manchester United. Ég naut þess í botn," sagði hinn ungi Macheda eftir leikinn í dag. Hann var spurður hvað Alex Ferguson hefði sagt við hann áður en hann sendi hann inn á völlinn. "Spilaðu þinn leik. Hafðu þetta einfalt. Spilaðu bara," sagði Rómverjinn ungi að stjórinn hefði sagt. Ferguson segir að það sé mikilvægt að Mancheda haldi sig á jörðinni þrátt fyrir hetjuskapinn í dag. "Ég sagði honum að hann hefði staðið sig vel. Hann á eftir að fá gríðarlega athygli og umfjöllun næstu daga og því er mikilvægt að hann haldi sig á jörðinni og nái að höndla það," sagði Ferguson. Varnarjaxlinn Gary Neville var líka ánægður með drenginn unga í dag. "Ég er honum fyrst og fremst þakklátur. Vörnin hjá okkur hrundi dálítið í síðari hálfleik en við gáfumst aldrei upp. Hæfileikarnir sem Mancheda sýndi í lokin voru ótrúlegir. Við höfum ekki séð mikið af þessum pilti til þessa, en hann er góður slúttari og maður vill alltaf að menn eins og hann fái boltann í teignum," sagði Neville.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira