Segist bera ábyrgð á stjórn landsins 1. janúar 2009 13:33 Geir H. Haarde. „
Sá dagur líður ei hjá að ég spyrji mig ekki hvort stjórnvöld hefðu getað komið í veg fyrir þá atburði sem urðu hér á landi í haust," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu. Geir sagði að hann sem forsætisráðherra bæri ábyrgð á stjórn landsins og þá ábyrgð myndi hann axla, hvort sem siglt væri um lygnan sjó eða þungan. Geir sagði það ljóst að það hafi ekki verið á færi íslenskra stjórnvalda að afstýra hruni íslensku bankanna eftir að heimskreppan skall á af fullum þunga. Allar aðgerðir stjórnvalda að undanförnu hefðu miðað að því að takmarka það tjón sem íslenska þjóðin muni óhjákvæmilega verða fyrir vegna bankahrunsins. Sú barátta hafi staðið dag og nótt og henni sé hvergi nærri lokið. Geir sagði að Íslendingar yrðu að draga réttan lærdóm af því sem gerst hefði, varðveita það sem hafi gefist vel og breyta því sem miður hafi farið.Við þyrftum að sníða okkur stakk eftir vexti.ekki mætti hlaupa ójafnvægi eða óviðráðanlegur ofvöxtur í efnahagslífið aftur. Efnahagur okkar verði í framtíðinni að byggjast á raunverulegri verðmætasköpun. Þá þyrftum við að temja okkur nýtt hugarfar í atvinnulífinu. Ævintýramennska og óhóf eiga að heyra sögunni til. Hann bætti við að forystumenn í atvinnulífi yrðu að finna meira til ábyrgðar sinnar í samfélaginu. Frelsi fylgdi ábyrgð. Margar aðgerðir bankanna og forystumanna þeirra hafi ekki borið vitni þeirrar ábyrgðar sem með réttu hefði mátt krefjast af þeim.
Mest lesið „Þeir munu hengja mig“ Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira