Enski boltinn

Alonso biður um að vera settur á sölulista

Ómar Þorgeirsson skrifar
Xabi Alonso.
Xabi Alonso. Nordic photos/AFP

Samkvæmt breskum og spænskum fjölmiðlum í morgun hefur miðjumaðurinn Xabi Alonso hjá Liverpool lagt inn skriflega beiðni til forráðamanna félagsins um að vera settur á sölulista.

Stórlið Real Madrid hefur verið á höttunum eftir Alonso í allt sumar en Liverpool hefur til þessa verið óhaggandi í verðlagningu á miðjumanninum en verðmiðinn er talinn nema um 30 milljónum punda.

Forráðamenn Real Madrid eru hins vegar ekki taldir vilja borga nema 25 milljónir punda fyrir Spánverjann og því hafa þessi mál staðið í stað fram til þessa.

Alonso var með fyrstu kaupum knattspyrnustjórans Rafa Benitez hjá Liverpool en hann pungaði út 10,5 milljónir punda fyrir leikmanninn árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×