Fækkun farsímamastra gæti aukið geislun 16. nóvember 2009 21:41
Geislavarnastofnanir Finnlands, Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Íslands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu varðandi geislun á almenning frá fjarskiptamöstrum á almannafæri. Niðurstaða þeirra er að ekki hafi verið færð fyrir því gild vísindaleg rök að þessi geislun, eins og hún er nú í venjulegu umhverfi fólks, hafi skaðleg heilsufarsleg áhrif. Stofnanirnar telja þó að fækkun farsímamastra gæti aukið geislun á almenning. Þetta kemur fram á vef Geislavarna ríkisins. „Geislun frá fjarskiptasendum er nú hvarvetna í umhverfi okkar. Dæmigerður styrkur hennar er örlítill, langt undir einu prósenti af viðmiðunargildum Alþjóðageislavarnaráðsins fyrir ójónandi geislun (ICNIRP). Þess vegna telja norrænu geislavarnastofnanirnar ekki þörf á frekari aðgerðum að svo stöddu til að draga úr þessari geislun," segir á vef Geislavarna. Geislavarnastofnanirnar á Norðurlöndum telja engu að síður að hafa verði í huga að í mörgum tilvikum hefur tæknibúnaður sem sendir frá sér þessa geislun verið notaður skemur en tvo áratugi. Þess vegna sé nauðsynlegt að halda áfram rannsóknum á hugsanlegum heilsufarsáhrifum geislunar frá fjarskiptasendum og stöðugt endurmat verði að fara fram á vísindaniðurstöðum á þessu sviði. „Norrænu geislavarnastofnanirnar ítreka að til þess að draga úr heildargeislun á almenning frá fjarskiptabúnaði, þarf í skipulagi bæði að taka mið af geislun frá sendimöstrum og handtækjum, t.d. farsímum." Farsímarnir valda mun meiri geislun á almenning en möstrin, að mati norrænu geislavarnastofnanna. „Yrði farsímamöstrum fækkað þyrftu símarnir að senda út af auknu afli til að viðhalda tengingu, með hugsanlegri aukningu geislunar á notendur þeirra í kjölfarið."
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira