Borgarfulltrúar fara í leikhús þeim að kostnaðarlausu Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. ágúst 2009 14:45 Borgarleikhúsið er í Kringlunni.
Borgarfulltrúar fá aðgang að leiksýningum í Borgarleikhúsinu þeim að kostnaðarlausu. Miðaverð á hverja almenna sýningu er 3450 krónur. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, sem hefur gagnrýnt boð til borgarfulltrúa um laxveiði í Elliðaánum, segir að menn verði að spyrja sig hvar mörkin liggi þegar kemur að slíkum boðum til kjörinna fulltrúa. „Hvað á að þiggja og hvað ekki?" spyr Þorleifur. Hann segist sjálfur hafa þegið boð um leikhúsferðir. „Mér hefur fundist þetta vera svona ákveðin virðing við starfsemi leikhússins sem er í eigu borgarinnar," segir Þorleifur. Þá bendir hann á að af leikhúsboðsmiðunum þurfi ekki endilega að hljótast af aukinn kostnaður fyrir leikhúsið því sætin í leikhúsinu séu ekki alltaf fullnýtt. Að þessu leyti sé málið ólíkt boði um veiði í Elliðaánum. „Mér finnst ekki við hæfi að Orkuveitan sé að taka frá heila viku í Elliðaánum og bjóða borgarfulltrúum og völdum starfsmönnum til veiða," segir Þorleifur. Þá segist Þorleifur ekki hafa þegið boð frá hestamannafélögum og golfklúbbum þegar boð frá þeim hafi borist. „Ég hef ekki þegið það. Mér finnst þá líka sumir vera komnir á annan stað en aðrir varðandi aðgang að borgarfulltrúum," segir Þorleifur.
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Sjá meira