240 milljarðar kunna að falla ríkissjóð 20. ágúst 2009 12:49 Frá Alþingi. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Framsóknarmenn leggja fram frávísunartillögu við Icesave samningana við aðra umræðu þeirra sem hófst á Alþingi í morgun. Ef 75% eigna Landsbankans innheimtast falla 240 milljarðar á ríkissjóð vegna Icesave eða sem svarar til 17% af landsframleiðslu, segir formaður fjárlaganefndar. Telja má fullvíst að frávísunartillaga Framsóknarmanna verði felld þegar til atkvæðagreiðslu kemur að loknum umræðum. Stjórnarflokkarnir og Borgarahreyfingin standa sameiginlega að áliti um breytingartillögur við Icesave samningana, Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst yfir stuðningi við breytingartillögurnar en skilar séráliti en Framsóknarmenn eru einir alfarið á móti málinu og leggur einnig fram sérálit þar að lútandi. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, mælti fyrir áliti meirihlutans í morgun. Hann lýsti aðdragana málsins og fór yfir langa og ítarlega vinnu fjárlaganefndar vegna málsins. Hann sagði fyrirvara fjárlaganefndar fela í sér að Alþingi hefði alltaf síðasta orðið varðandi ríkisábyrgð vegna Icesave og fyrirvarar nefndarinnar væru fáir en skýrir og fullveldi þjóðarinnar tryggt. „Það er mat meirihlutans á grundvelli fyrirliggjandi umsagna, meðal annars frá fjármálaráðuneytinu, Seðlabanka Íslands og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að ríkissjóður geti staðið undir ábyrgðinni. Að sama skapi er ljóst að ríkisábyrgðin verður í íslenska ríkinu íþyngjandi," segir Guðbjartur. Kristján Þór Júlíusson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd gagnrýndi harðlega í sinni ræðu hvernig ríkisstjórnin stóð að viðræðum við Breta og Hollendinga og hvernig Bretar og Hollendingar gerðu allt til að leggja stein í götu Íslendinga eftir fall íslensku bankanna. Hann sagði nauðsynlegt að Íslendingar færu fram á rannsókn á því hvernig það gerðist að hægt var að misbeita Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í þágu Breta, Hollendinga og Þjóðverja á kostnað Íslands. Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Framsóknarflokksins spurði hvernig Sjálfstæðismenn gætu samþykkt að afgreiða málið út úr nefnd, en talað gegn málinu. Ómögulegt er að segja hvenær annarri umræðu lýkur en talsmenn flokka og formenn þeirra mega tala í 40 mínútur í fyrra skipti og 15 mínútur í annað skipti og óbreyttir þingmenn í 20 mínútur í fyrra skiptið og tíu mínútur í seinna skipti í umræðunni. Þá eru ekki talin með andsvör. Nú eru 26 á mælendaskrá og því ljóst að umræðan gæti a.m.k. tekið um 30 klukkustundir. Fundinum, sem stóð í tvo daga, lauk í dag. Samstarf deildanna er ekkert nýtt þar sem það hefur staðið yfir í vel á annan tug ára. Á norrænum fundi dómsmálaráðherra sem haldinn var í sumar var ákveðið að auka samstarfið.
Tengdar fréttir Icesave rætt á Alþingi Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, mælti fyrir meirihlutaáliti fjárlaganefndar um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta þegar þingfundur hófst klukkan níu í morgun. Gert er ráð fyrir að málið verði samþykkt á Alþingi um helgina. 20. ágúst 2009 09:12 Framsóknarmenn vilja nýjar viðræður Framsóknarflokkurinn vill að frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave verði vísað frá Alþingi og að ríkisstjórnin hefji viðræður við yfirvöld í Bretlandi og Hollandi um nýtt samkomulag. 20. ágúst 2009 10:01 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira
Icesave rætt á Alþingi Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, mælti fyrir meirihlutaáliti fjárlaganefndar um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta þegar þingfundur hófst klukkan níu í morgun. Gert er ráð fyrir að málið verði samþykkt á Alþingi um helgina. 20. ágúst 2009 09:12
Framsóknarmenn vilja nýjar viðræður Framsóknarflokkurinn vill að frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave verði vísað frá Alþingi og að ríkisstjórnin hefji viðræður við yfirvöld í Bretlandi og Hollandi um nýtt samkomulag. 20. ágúst 2009 10:01