Rannsaka skotvopn árásarmannsins 18. nóvember 2009 05:30 Útidyrahurð fórnarlambs. Árásarmaður skaut nokkrum skotum á dyr og dyraumbúnað á heimili í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Mynd/Anton Brink
Lagt hefur verið hald á nokkur skotvopn á heimili mannsins sem réðist á annan á heimili þess síðarnefnda í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. „Rannsókn er í gangi á því hvaða vopni var beitt í árásinni," segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er í gæsluvarðhaldi fram til föstudags, hefur játað árásina, en rannsóknin beinist nú meðal annars að því hversu mikið tjón hann ætlaði fórnarlambi sínu. Árásarmaðurinn er, að sögn Friðriks Smára, með leyfi fyrir fleiru en einu skotvopni. Maðurinn sem ráðist var á kom til dyra um hálf fjögur aðfaranótt sunnudags en var þá barinn í andlitið með skeftinu á haglabyssu. Hann náði að loka á árásarmanninn sem í kjölfarið skaut um fimm skotum á hurðina og dyraumbúnað. Árásin er talin eiga rót sína í því að maðurinn sem ráðist var á hafði sagt unnustu árásarmannsins upp störfum. Friðrik Smári segir erfitt að segja til um hvenær rannsókn málsins kunni að ljúka. „Það er unnið að þessu af fullum krafti og reynt að komast eins langt og hægt er meðan gæsluvarðhaldið stendur. Við verðum svo bara að sjá hvar við stöndum þá," segir hann. - óká
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Sjá meira