Umfjöllun: Fylkismenn skutust upp í annað sætið Ómar Þorgeirsson skrifar 13. júní 2009 20:30 Gunnar Valur Gunnarsson á flugi í leik gegn Fylki. Mynd/Stefán
Fylkismenn gerðu góða ferð á Fjölnisvöll og unnu verðskuldaðan 1-3 sigur gegn Fjölnismönnum. Fylkir komst með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar en Fjölnir er áfram í erfiðum málum í neðri hlutanum. Jafnræði var með liðunum framan af leik og ekki mikið um opin marktækifæri. Mesta ógnin kom þá úr föstum leikatriðum og liðin skiptust á að sækja. Eftir rúman hálftíma leik náðu Fylkismenn hins vegar að galopna Fjölnisvörnina þegar bakvörðurinn Andrés Már Jóhannesson lék upp hægri kantinn og stakk svo boltanum inn fyrir vörn Fjölnis á Ingimund Níels Óskarsson. Ingimundur lék laglega á Þórð Ingason í markinu og skoraði af öryggi og kom gestunum yfir í leiknum, 0-1. Stuttu síðar opnaðist vörn Fjölnis að nýju þegar Ingimundur átti stungusendingu á Kjartan Ágúst Breiðdal sem lék á Þórð og renndi boltanum í autt markið. Fjölnismenn voru í stökustu vandræðum á þessum tímapunkti í leiknum og varnarleikur liðsins eins og gatasigti. Pape Mamadou Faye hefði getað skorað þriðja mark Fylkis, sem hefði líklega gert út um leikinn, en Þórður sá við honum og bjargaði í horn. Nokkuð gegn gangi leiksins náðu Fjölnismenn svo að minnka muninn í lok fyrri hálfleiks en markið var af dýrari gerðinni. Illugi Þór Gunnarsson fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Fylkis og lét skot ríða af á 25 metra færi og skoraði glæsilegt mark, í stöngina og inn. Fjölnismenn voru því komnir inn í leikinn að nýju þegar hálfleiksflautan gall og staðan 1-2. Fjölnismenn gerðu breytingar á vörn sinni í hálfleik og Gunnar Már Guðmundsson sem byrjaði leikinn í miðverðinum var færður framar á völlinn. Fylkismenn neyddust líka til þess að gera breytingu þar sem Andrés þurfti að fara út af meiddur. Í stað þess að Fjölnismenn næðu að hamra járnið á meðan það væri heitt og jafna, þá bættu Fylkismenn við þriðja markinu á 53. mínútu og gerðu nánast út um leikinn. Ingimundur sótti aukaspyrnu rétt utan vítateigs og skoraði svo sjálfur úr henni með föstu skoti í gegnum varnarvegg Fjölnis. Leikurinn datt örlítið niður eftir þriðja mark Fylkis en sigur gestanna var í raun aldrei í mikilli hættu. Leikurinn fjaraði smátt og smátt út og Fylkismenn unnu 1-3 og gátu verið sáttir með enn einn sigurinn í sumar. Fjölnismenn þurfa hins vegar að fara að taka sér tak og finna lausn á varnarvandræðum sínum. Þá var sóknarleikur liðsins í dag afar slakur og hugmyndasnauður. Tölfræðin: Fjölnir - Fylkir 1-3 0-1 Ingimundur Níels Óskarsson (31.)0-2 Kjartan Ágúst Breiðdal (38.)1-2 Illugi Þór Gunnarsson (45.)1-3 Ingimundur Níels Óskarsson (53.) Fjölnisvöllur. Áhorfendur: ??? Dómari: Þóroddur Hjaltalín (4) Skot (á mark): 13-15 (8-6) Varin skot: Þórður 2 - Fjalar 6 Horn: 5-6 Aukaspyrnur fengnar: 22-23 Rangstöður: 2-5 Fjölnir (4-3-3):Þórður Ingason 5 Gunnar Valur Gunnarsson 5 Gunnar Már Guðmundsson 5 (64., Kristinn Freyr Sigurðsson 4) Eyþór Atli Einarsson 4 Magnús Ingi Einarsson 5 Heimir Snær Guðmundsson 4 (79., Ólafur Páll Johnson -) Illugi Þór Gunnarsson 7 Ragnar Heimir Gunnarsson 6 Aron Jóhannsson 6 Jónas Grani Garðarsson 4 (88., Guðmundur Karl Guðmundsson -) Andri Valur Ívarsson 5 Fylkir (4-3-3):Fjalar Þorgeirsson 7 Andrés Már Jóhannsson 7 (46., Tómas Þorsteinsson 5) Einar Pétursson 7 Kristján Valdimarsson 6 Þórir Hannesson 6 Valur Fannar Gíslason 7 Ólafur Ingi Stígsson 6 Halldór Fannar Hilmisson 6 (82., Albert Brynjar Ingason -) Ingimundur Níels Óskarsson 8 *Maður Leiksins Pape Mamadou Faye 4 (64., Kjartan Andri Baldvinsson 5) Kjartan Ágúst Breiðdal 7
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti „Við fórum að spila alvöru körfubolta“ Sport Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Enski boltinn Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira