Erlent

Lengsti sólmyrkvi þessarar aldar

Óli Tynes skrifar
Milljónir manna söfnuðust saman í Asíuríkjum í dag til þess að fylgjast með lengsta sólmyrkva sem verður á þessari öld. Sólmyrkvinn hófst á Indlandi og fór þaðan yfir Nepal, Bangladesh, Bhutan, Burma og Kína. Frá meginlandi Asíu lá leiðin suðaustur yfir Kyrrahaf.

Sólmyrkvar eiga sér stað þegar tungl er nýtt og gengur fyrir sólina og varpar skugga á takmarkað svæði á yfirborði jarðar..

Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfur atburður á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur.

Almyrkvinn í dag varaði samtals í sex mínútur og þrjátíu og níu sekúndur. Ekki verður jafn langur almyrkvi aftur fyrr en árið 2132.

Sólmyrkvar hafa engar afleiðingar í för með sér aðrar en þær að dýr breyta hegðun sinni meðan hann stendur yfir.

Í Japan gengu til dæmis ruglaðar beljur til fjóss til að láta mjólka sig og fóðra, þegar myrkvinn gekk þar yfir í dag.

Sólmyrkvi hefur einnig áhrif á mannskepnuna víða um heim þar sem honum tengist margskonar hjátrú.








Tengdar fréttir

Japanar spenntir vegna sólmyrkva

Japanar bíða nú spenntir eftir að fylgjast með sólmyrkva sem verður 22. júlí og er sá langvinnasti á þessari öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×