Sport

Marseille tók toppsætið af Lyon

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Eric Gerets, þjálfari Marseille.
Eric Gerets, þjálfari Marseille. Mynd/Getty Images

Marseille er komið á toppinn í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir að liðið vann öruggan sigur í dag á meðan Lyon gerði jafntefli.

Marseille vann Grenoble 4-1 en Lyon gerði 2-2 jafntefli við Monaco.

Marseille hefur 61 stig þegar sjö umferðir eru eftir, Lyon einu stigi minna og Bordeaux er aðeins einu stigi á eftir Lyon.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×